Réttur - 01.12.1916, Síða 26
140 -
neðan við Síðumúla, og þaðan heldur brautin áfram niður
héraðið, með álmu fram eftir Reykholtsdal. Borgfirðingar
vilja að vegur þessi sé lengdur niður hjá Hvítárvöllum, áin
brúuð þar og veginum síðan haldið áfram þangað til hann
nær Borgarnesbraútinni. Verður varla langt að bíða að þetta
verði komið í framkvæmd. Pá gæti einn maður í bifreið (eða
á mótorhjóli með tveimur sætum) flutt póst um alt Faxa-
flóaláglendið á einum degi. Petta er sagt til að sýna, hvað
hér má gera til gagns og þæginda, ef rétt er að farið. Nú
Iiggur einhver besti akvegur á landinu milli Hafnarfjarðar
og Keflavíkur, og verið að gera vegálmu til Orindavíkur og
suður á Miðnes. Eftir fáein ár verður fært á bifreiðum milli
allra sjóþorpanna á Reykjanesskaga, bæði sumar og vetur,
því að snjóalög eru þar jafnan lítil. Bifreiðar geta gengið
eftir öllum helstu þjóðvegum í Árnes- og Rangárvallasýslum.
Yfir Fagradal frá Reyðarfirði að Egilsstöðum er ágætur ak-
vegur, bílfær. Og á Lagarfljóti er vélbátur, sem heldur uppi
reglubundnum sumarferðum.
Á öllum þessum stöðum má nú þegar koma á mjög
hröðum póstferðum, með vélbátum, bifreiðum og mótor-
hjólum, ef hraðskreið strandferðaskip annast flutninginn
milli aðalhafna.
Nú skal nokkuð vikið að póstferðunum á landi. Hvort
sem strandferðaskipin, sem annast eiga póst og mannflutn-
ing, verða eitt eða tvö í fyrstu, er hér gert ráð fyrir að
póstferðunum verði ekki fyrst um sinn fjölgað nema úr 15
á ári í 36, þ. e. miðað við að póstur komi á hverja póst-
stöð 10. hvern dag árið um í kring. Til að koma á þeirri
endurbót, þarf ekki nema eitt póstskip.
Nú er að líta á póstflutninginn á landi. Frá Reykjavík
flyiti Flóabáturinn póst með 10 daga millibili (en ekki sama
daginn) á alla þessa staði: Keflavík, Akranes, Borgarnes og
Búðir. Frá Keflavík gengju póstar um Reykjanes framanvert.
Frá Akranesi inn með Hvalfirði og upp um Leirársveit. Frá
Borgarnesi vestur í Hnappadalssýslu og upp á Hvítársíðu.
Frá Búðum um Snæfellsnes framanvert. Austanpóstur færi
frá Reykjavík yfir Hellisheiði 10. hvern dag, alla leið austur