Réttur


Réttur - 01.12.1916, Síða 38

Réttur - 01.12.1916, Síða 38
- 152 sýna fram á, að mörg hjú hafa komizt í talsverð efni og lifað farsælu lífi, ef þau hafa stöðvazt í vist á góðu heimili. En þó svo yrði nú, sem vel færi, að fólki í föstum vist- um færi fjölgandi, þá gæti það aldrei orðið til stórra muna, sem fólksfjölgun. Nei, eigi fólki að fjölga til drátta í sveit- unum, þá þurfa býlin að fjölga — sjálfstæðu fjölskyldu- mönnunum að fjölga. Til þess eru margar leiðir, og má t. d. nefna: 1. að byggja upp gömul eyðibýli. 2. — auka fleirbýli á jörðum. 3. — skifta jörðum í 2 jarðir, eða fleiri. 4. — stofna nýbýli. 5. — stofna grasbýli. Um fyrstu Ieiðina er það að segja, að þar veltur á hver orsök Iiggur til, að býlið lagðist í eyði. Hafi það verið vegna afstöðu í bygðarlagi, eða breyttra búnaðarhátta, mun ekki fýsilegt að færa bygð þangað á ný. En liggi aðrar orsakir til, að bygð hélzt þar ekki við (t. d. mannfækkun í því héraði) en þó lífvænleg skilyrði fyrir hendi, þá mun þar vera einna greiðastur vegur til að fá ábúðarrétt, með öðrum orðum, rétt til að stofna nýtt býli, þó á gömlum rústum sé. Koma þar og flest sömu skilyrði til greina fyrir frumbýlingum, sem um algert nýbýli væri að ræða. Næsta leiðin — fleirbýlin — er allvíða að færast í vöxt í sumum héruðum landsins. En vandi er að ráða til eða frá um þá leið, því þar er öllu fremst komið undir samkomu- lagi manna og samlyndi, ekki sízt, ef skiftingin er með þeim hætti, að húsakynni eru meira eða minna sameigin- ,eS» °g jarðarafnot einnig óskift að sumu leyti. — Auðsætt er það, að oft eru jarðir meira setnar og framfleyta fleira fólki, ef þær eru teknar til fleirbýlis, en svo vill það og oft brenna við, að fyrir því verða jarðir, sem bera illa aukna áhöfn, nema til ágangs verði á aðrar jarðir, eða þá með skiftingunni sé þær jarðabætur gerðar á jörðinni, er sam- svari hinni auknu áhöfn. — En þess er ekki að dyljast, að oft virðist togsperra á, að þörf mannvirki fyrir jarðar- heildina komizt í framkvæmd, þar sem það veltur á margra
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98

x

Réttur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.