Réttur


Réttur - 01.12.1916, Side 54

Réttur - 01.12.1916, Side 54
168 - ugt verið notuð til flutninga, og það eins eftir að eimskip- in voru orðin algeng. Seglskipin stóðust víða samkepni þeirra. Og síðan mótorar náðu þeirri fullkomnun, sem orð- in er á bygging þeirra síðustu árin, hefir seglskipum með hjálparmótorum víða tekist að verða hlutskarpari i því að flytja ódýrt en eimskipin. Mótorar af nýjustu gerð eru svo eldsneytissparir, að þeir komast af með tvo til þrjá aura á hvert hestafl á einni klukkustund — í stað þess, sem eimskip þurfa alt að tíu aurum á hestaflið sömu tímalengd. Auk þess eru mótor- arnir sjálfir ódýrari en gufuvélar og taka minna rúm í skipi; og að síðustu þarf eldsneyti þeirra minna rúm í skipi en kolin. Sést þetta bezt á því, að stærstu mótorskipin, sem til eru, geta farið kringum jörðina, með því að nota aðeins þann olíuforða, sem kemst fyrir á milli ytri og innri klæðn- ingar á kyli (botni) skipsins. En fyrir það rúm, sem þann- ig sparast, má flytja meira af vörum. Skip, sem hentugust væri til flutninga hér með strönd- um fram, mætti vera alt að 250 — 300 smálestir að farm- rúmi, og gæti flutningur með þeim orðið mjög ódýr á hverja smálest. Slík skip kosta í útgerð fyrir hvern dag miklu minna en stærri skip, og auk þess er sennilegt, að þau gæti komizt hjá töfum og óþægindum, sem fylgja stærri skipum. Pau gætu víða legið inni á betra skipalagi, svo sem á Pórshöfn og Raufarhöfn, og það jafnvel við bryggjur, sem stærri og djúpskreiðari skip komast eigi að. Á öðrum stöðum gæti þau legið nær landi. Og á smærri skipum fer miklu minni tími í að sigla inn á hafnir, leggj- ast, létta atkerum o. s. frv. Ennfremur má taka það til greina, að þegar aðstaðan af þessum ástæðum verður betri við upp- og framskipun, þá veröur hún ódýrari, og spar- ast hlutaðeigendum þar peningar. MótOrskip, af áðurnefndri stærð, eru líklega ekki fáanleg nú eða fyrst um sinn, nema í Norvegi eða Svíþjóð, og eru þau vafalaust dýr. Reynist þau ókaupandi þaðan, þá virðist eigi frágangssök að nota minni skip, sem verða bygð innanlands. í Reykjavík eru nú búin til eitthundrað

x

Réttur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.