Réttur - 01.12.1916, Blaðsíða 94
- 208 -
eftir betta að lenda í klóm Beduinahöfðingjans, samkvæmt
lagaréttinum.
Hinn grimmi ræningjaforingi fékk fyrir aðstoð laganna
meira menningarsnið á sig — hann varð einkaleyfishafi.
Xenry Seorge.
III.
Launahækkun og húsaleiguhækkun.
Frá Austurríki er skrifað:
Fyrir nokkrum mánuðum síðan var alþjóð hér ógnað með
járnbrautarverkfalli.
Járnbrautastarfsmennirnir heimtuðu hærri Iaun. Og þeir
héldu fundi um launahækkunarmálið hér og þar um alt
ríkið á hverjum'degi og hverri nóttu að heita mátti.
Blöðin skýrðu frá æsingunum hjá járnbrautastarfsmönn-
unum, sem hótuðu verkfalli til þess að kröfur sínar yrðu
frekar teknar til greina af stjórninni, sem var mjög hikandi
í þessu máli.
Fulltrúar járnbrautastarfsmanna af öllum stjórnmálaflokk-
um ræddu sífelt um málið við ráðaneytið og þingið, sem
helzt vildi hækka launin um 38 miljónir kr., en stjórnin
viidi ekki hækka þau nema um 20 mil. kr. Og það vant-
aði lítið á, að það yrðu ráðaneytisskifti vegna ósamþykkis-
ins milli þingsins og ráðaneytisins.
Að lokum var þó samþykt 20 mil. kr. hækkun — og
hver urðu áhrifin?
Síðar skýrði lestarstjóri einn mér frá því, að hann og
þeir, sem höfðu jöfn laun og hann, hefðu fengið í sinn
hlut 18 aura á dag — en jafnhliða hefðu húsaeigendur í
bæjum þeim, sem járnbrautastarfsmennirnir neyddust til
að búa í, hækkað húsaleiguna um 5 kr. á mánuði fyrir
hann og jafningja hans. En launahækkunin var kr. 5.40 á
mániiði.