Réttur - 01.02.1928, Blaðsíða 56
58
FRÁ ÓBYGÐUM
[Rjettur
Þingniannaháls er um 5 km. breiður og ölclóttur ofan.
Hann er úr grágrýti, en sæmilega greiðfær, því að ofan
á grágrýtinu eru víða melar og moldarflög. Gróðurlaus
cr hann að kalla og vindgnúinn mjög. Hann nær norður á
Háutungur, en endimörkin eru óglögg að norðan. Vestast
á hálsinum, skamt fyrir norðan Galtarárdrög, er fell það,
sem Hanskafell heitir. Liggur Kjalvegur laust fyrir sunnan
fell þetta.
Lægðin, sem liggur að Svartá, er grunn og hallalítil,
einkum sunnan til, en er norðar dregur dýpkar hún og
þrengist. Nyrst sveigir hún til vesturs og verður að djúpu
klettagili, sem Stafnsgil heitir. Það liggur niður í Svart-
árdal í Húnavatnssýslu. Svartá rennur sunnan lægðina í
óteljandi bugðum og hlykkjum. Svæði þetta heitir Bngar.
Þar er áfangastaður gangnamanna og áningarstaður á
Kjalvegi.
Austan við lægð þessa er aðalhryggur hálendisins, sá er
vötnum skiftir milli Blöndu og Héraðsvatna. Hann er mik-
ill og breiður, gróðurlítill og óvegsamur. Að norðan er
hann áfastur við fjöll þau, sem ganga suöur frá Mælifells-
hnjúk í Skagafirði. Frá fjöllum þessum liggur háls einn
mikill suður eftir vestanverðum hryggnum. Vestan í hon-
um er brött hlíð, er veit aö lægðinni, sem Svartá rennur
eftir. Noröurhluti hlíðarinnar heitir Hankagilsheiði, en
suðurhlutinn Brunabrekka. Haukagilsheiöi liggur suður
frá Mælifellsdal, og nær suður að læk þeim, sem Bruna-
brckkulækiir heitir. Hann keniur ofan af Litlasandi. Á
heiðinni er allmikill gróður: móar og votlendi. Þar eru
lækir margir og uppsprettur. Brunabrekka er vatnslaus
og gróðurlaus. Hún liggur austur frá Bugum og nær langt
suður á Hraunin. Endar hún þar í lágri öxl, sem Bruna-
brekkuliaus heitir. Hann liggur austur frá Bugahæð, og
standast þau á frá vestri til austurs Ytra-Skiftifell, Buga-
hæð og Brunabrekkuhaus. Háls þessi mun vera úr blá-
grýti, eins og bygðafjöllin við Skagafjörð. Hann er all-
breiður, flatur ofan og gróðurlaus með öllu. Uppi á hon-