Réttur - 01.02.1928, Blaðsíða 52
54
FRA ÓBYGÐUM
[Rjettur
við jökulinn austast á Eyvindarstaðaheiði, milli upptaka-
kvísla Vestari-Jökulsár. Jökullinn liggur fram á fellið, og
skiftir það skriðjöklum. Vestan við það er Sátujökull, en
að austan annar minni, er liggur niður að Lambahrauni.
Verður hans síðar getið. Þar sem skriðjöklar þessir
beygja upp með fellinu, ganga lítil vik upp milli fells og
jökuls. Þau heita Austari- og Vestari Jökulkrókur. Þar
eru sandar og melar, og á þeim hagasnapir litlar. Finst
þar jafnan fé í haustleitum. Hestahagar eru þar engir.
Krókafell virðist vera úr móbergi, sem önnur fell í brúnum
Hofsjökuls.
Meðfram Sátujökli öllum er röð af hólum, sem Jökulhól-
ar heita. Þeir standa svo þétt sem væru þeir víggarður.
Ekki eru þeir liáir, en jafnháir flestir, strýtulagaðir eða
kollóttir. Jökulgerði þetta er furðulega skýr endameluri
Hefir skriðjökullinn um langan aldur varpað þar niður
grjótbyrði sinni og þannig hlaðið hólana.
Nokkur hundruð metra bil er rnilli jökulsins og hólanna,
að minsta kosti fyrir vestari helming jökulsins. Sýnir það,
að jökullinn hafi hrokkið til baka, síðan hólarnir sköp-
uðust.
Eg hefi tvisvar farið með hólunum vestanverðum og
gengið upp á þá á nokkrum stöðum. Þeir eru brattir og
bleytusamir, því að í þeim er ískjarni. Milli þeirra og jök-
ulsins eru sléttir sandar, og liðast jökullækir um þá. Jök-
ulbrúnin er víðast snarbrött og sumstaðar þverhnípt. í ís-
hömrum þessum eru margir hellar, sem spýta gulmórauðu
jökulvatni út úr kolgrænum kjöftunum. Vatn þetta leitar
til vesturs og verður að Bláfellskvisl.
Norður frá Jökulhólunum liggur allstór slétta, sem er
grcindur. Hann var þaulkunnugur á Eyvindarstaðaheiði og
gangnaforingi nokkur ár. Heyrt hefi ég aðra nefna fellið Jök-
ulfell, en ekki er það nafn alment, og hafði Pétur ekki heyrt
það. Nafnið Krókafell er dregið af Jökulkrókunum. Það er
réttnefni og skýrara en hitt.