Réttur - 01.02.1928, Blaðsíða 68
70
FRA ÓBYGÐUM
[Rjettur
með fram Vestari-Krókkvísl. Vestan við hana er liár
hraungarður, en að austan allháir inelar. í flánni er sauð-
gróður nokkur, en engir hestahagar, og er ilt um hana að
fara fyrir sandbleytu. / Jökiilkrókunum er lítilfjörlegur
gróður, og hefir hans áður verið getið.
Þar sem upptakakvíslar Jökulsár falla saman, er Iítill
gróðurblettur á vesturbakka vestari kvíslarinnar. Hann
heitir Skiftabakki. Þar er mosagróður nokkur og gisinn
grashýjungur.
Við Hraunlæk er annar gróðurblettur miklu stærri og
grasgefnari. Hans hefir áður verið getið.
Á Goðdaladal er allmikill gróður, eins og áður er sagt.
Mestur er gróðurinn neðan til í dalnum, en í honuin sunn-
anverðum sverfur sandflug mjög að gróðrinum, og eru þar
stórir kaflar örfoka, einkiun uppi í hlíðunum.
I Svartárpollum er allstór gróðurblettur. Þar er dálítil
flá og nokkur grasgróður með fram uppsprettum og
tjörnum. Heyrt hefi ég, að gróður fari þar þverrandi vegna
sandflugs og uppblásturs.
Svartárdalar er gróðurlaus fremst. En skamt niður frá
dalbotninum tekur að bóla á gróðri, og fer hann vaxndi
niður dalinn. Austurhlíð dalsins heitir Svartárdalsruna, en
að vestan heitir Stuttreitur eða Stuttireitur, nokkuð suður
frá Ölduhrygg. Fyrir sunnan hann er Gullreitur, og nær
hann alllangt suður dalinn. Sunnan við Gullreit er hvamrn-
ur einn, grasi gróinn, og heitir hann Tjaldhvammur. Þar
var áður fyr áfangastaður gangnamanna. Tjaldhvammur
Iiggur nokkuð út frá »Pollum«.
I Svartárdal er sauðland gott, og þykir þar vera þrauta-
beit.
Gilhagadalur er grösugur, einkum neðan til. Neðst á
honum er eyðibýli, sem heitir Gilhagasel. Þar hélst bygð
uppi fram á þessa öld. Syðst og vestast á dalnum er all-
stór flá, sem Vatnafellsflói heitir. Hann liggur austur frá
Vatnafelli. f honurn eru upptök Gljúfurár,