Réttur - 01.02.1928, Blaðsíða 67
Rjettur]
FRÁ 6BYGÐUM
C9
eru austan viö lægöina. Undir þeini eru uppsþrettur maíg-
ar og dý. Lægö þessi er flatlend og votlend. Hún heitir
Blönduflóar.
í Galtarárdrögum er lítill gróður, en neðar i lægö þeirri,
sem Qaltará rennur eftir, er gróðurinn meiri, einkum í
þeim kafla hennar, sem til vesturs liggur. Þar er allstór flá
og grösug norðan árinnar, og liggur Skínandavegur um
hana. i flá þessari á flokkur gangnamanna nattstaö, en
annar í Fossadalsdrögum.
Fyrir norðan Galtará fer gróðurinn vaxandi noröur liáls
þann, sem liggur milli Fossadals og Blöndu, og uppblást-
ur er þar minni en sunnar á heiðinni. Háls þessi er öld-
óttur ofan. Utan í öldunum eru stórþýfðir móar, en milli
þeirra flóar og mýrasund.
í Blöndugili eru grashvammar nokkrir og lyngbrekkur.
í Rugludal er mikill gróður. Fossdalur er og gróðursæll,
og nær gróðurinn alt fram i Fossdalsdrög.
Þingmannaháls er gróðurlaus að kalla, en í Bugum er
allmikill gróður, eins og áður er sagt. Suður frá vatninu
liggur flá, rótill, en fremur grasgefin. Hún heitir Buguflá.
í Búgum er lítið sæluhús, sem heitir Bugakofi. Hann
stendur uppi á melbungu, sem gengur austan í flána fast
sunnan við vatnið.
Háutungur liggja milli Fossadals og Stafnsgils. Þær erti
ásóttar ofan, og er nokkur gróður milli ásanna, einkum
norðan til. Stafnsgil er allmikið gróið neðan til. Ofan til í
því eru grashvammar og gróðurbrekkur, líkt og í Blöndu-
gili. Frá gróðri á Haukagilsheiöi og Mælifellsdal hefir
áður verið sagt.
Á austanverðri Eyvindarstaðaheiði er gróður lítill
Grágrýtisauðn er þar víðast og fátt um gróðrabletti.
Svæöiö rnilli upptakakvísla Jökulsár heitir Jökultunga.
Raunar eru tungurnar tvær, og er hin vestari miklu stærri.
Jökultunga er að mestu gróðurlaus. Þó er þar gróður-
blettur einn eigi alllítill, og heitir hann Eyfirðingaflá. Flá
þessi liggur norðaustur frá Eyfirðingahólum, á eyrum