Réttur - 01.01.1944, Blaðsíða 5
RÉTTUR
9
þ. á., um óþægindi þau, sem stjórn U.S.A. telur að slit á sambands-
lagasamningnum milli íslands og Danmerkur fyrir tilskilinn tíma
geti valdið, hef ég haft samráð við formenn og forustumenn allra
flokka Alþingis, enginn þeirra undantekinn, og standa þeir óskiptir
hak við það sem nú skal greina:
1) Það hefur ekki verið og er ekki ósk íslendinga, að haka stjórn
U.S.A. nein óþægindi, heldur að áfram haldist það vinsamlega sam-
neyti, sem verið hefur.
2) Orðalagið samningsslit fyrir tilskilinn tíma á væntanlega við
samningsslit, sem gangi í gildi fyrir 1944, því að frá þeim líma að
telja gefur samningurinn sjálfur skýlausa hcimild til þess að slíta
sambandinu einhliða. Um það hefur aldrei verið neinn ágreiningur
milli íslendinga og Dana né við aðra, enda orð samningsins um
það efni ótviræð.
3) Tvisvar, löngu fyrir núverandi ófrið, hefur Alþingi lýst því
yfir einróma, að þessi heimild yrði notuð af Islands hálfu, þ. e.
sambandinu slitið þegar eftir árslok 1943. Þetta er á vitorði Dana,
hinna Norðurlandaþjóðanna og annarra, sem fylgjast með málefn-
um íslands. Hafa menn því verið við því húnir.
4) Ákvörðun um að slíta sambandinu og stofna lýðveldi á ís-
landi hefur að baki sér ekki eingöngu alla flokka þingsins, heldur
og alla þingmenn án undantekningar (ekki aðeins certain factions)
og væntanlega yfirgnæfandi meirihluta þjóðarinnar. Mun það korna
frarn við þjóðaratkvæði, sem látið verður ganga áður en málinu
er ráðið til lykta til fullnustu.
5) Vakin skal athygli á því, að 17. maí 1941 lýsti Alþingi því yfir
einróma, að það teldi ísland hafa öðlazt rétt til fullra sambands-
slita við Danmörku, og það vildi, að stofnað verði lýðveldi á Islandi
jafnskjótt og sambandinu við Danmörku verði formlega slitið. Þess-
ar ályktanir höfðu þannig verið gerðar og hirtar opinberlega áður
en hervernd U.S.A. á Islandi kom til lals. Þessar ályktanir Alþingis
voru tilkynntar stjórn Dana formlega stjórnarleiðina.
6) Rétturinn til sambandsslita nú þegar byggist á þeirri skoðun
íslenzkra fræðimanna, sem þeir telja í samræmi við skoðun flestra