Réttur - 01.01.1944, Blaðsíða 46
50
RÉTTUR
legan og heldur ósmekklegan vígamóð. Ríkisstjórnin skipaði þriggja
manna sáttanefnd auk sáttasemjara. Svo fóru þó leikar að Dags-
brún vann glæsilegan sigur, án þess að kæmi til verkfalls. Enda mun
kaupdeila þessi hafa verið betur undirbúin en dæmi eru til áður
hér á landi og almenningsálitið eindregið á bandi Dagsbrúnar.
Samkvæmt hinum nýju samningum er grunnkaup í almennri
dagvinnu nú kr. 2.45 um klst. En grunnkaup í ýmsri erfiðri vinnu
hækkaði úr kr. 2.10 eða 2.75 upp í 2.90, en hæsta kaup Dagsbrún-
armanna er kr. 3.60 um klst. (Box- og katlavinna o. fl.) Haldið er
áfram samningum um betra skipulag vinnunnar við höfnina til þess
að tryggja stöðugri atvinnu. Samkomulag náðist einnig um ýms
önnur atriði, sem verkamenn fóru fram á.
FORMANNSSKIPTl í FRAMSÓKNARFLOKKNUM
í apríl hélt Framsóknarflokkurinn sjöunda flokksþing sitt í
Reykjavík. Þar gerðust þau tíðindi að Hermann Jónasson var kos-
inn formaður í stað Jónasar Jónssonar, sem verið hefur foringi
flokksins frá stofnun hans.
Jafnframt var samþykkt ályktun þar sem fordæmd var stefna
blaðsins „Bóndans“; en samtök þau, er að „Bóndanum" standa er
svartasta afturhaldið í Framsóknarflokknum og Sjálfstæðisflokkn-
um. Stefnumiðið er að sameina stóratvinnurekendur og stórbændur
í eina afturhaldsfylkingu til þess að brjóta verkalýðshreyfinguna og
sósíalismann á hak aftur og hreyfingin ber á sér öll einkenni fasist-
iskra stórbændasamtaka í öðrum löndum. „Bóndinn“ hefur notið
stuðnings Sambands ísl. samvinnufélaga.
Margir frjálslyndir Framsóknarkjósendur munu telja þetta all-
mikinn sigur. Og víst er um það, að þessar ráðslafanir hafa verið
gerðar vegna þungrar undiröldu róttækra afla í sveitum Iandsins.
En jafnframt er áríðandi að menn geri sér vel Ijóst að enn hefur
í raun og veru ekkert breytzt.
Um langt skeið hefur engum dottið í hug að snúa sér til Jónasar
frá Hriflu sem fulltrúa Framsóknarflokksins þó hann hafi ált að
heita formaður. Hinsvegar heldur hann öllum sínum valdastöðvum,