Réttur - 01.01.1944, Blaðsíða 85
R É T T U R
89
verkfræöinga fyrirtækjanna, og luku þeir prófi í lok námskeiðsins.
A tíu árum fjórfaldaðist tala faglærðra vélfræðinga, en lala verk-
fræðinga og vísindamanna í iðnaðarmálum sjöfaldaðist. Að því
er varðar launakjörin í lok 2. fimm ára áætlunarinnar má geta
þess, að launum var stigskipt í marga launaflokka, sem voru frá
átta í þungiðjunni upp í fimmtán í vefnaðariðnaðinum, og hlut-
fallið milli hæsta launaflokksins og hins lægsta var liö.1 Þetta nær
yfir liina ýmsu launaflokka á grundvelli hins áætlaða framleiðslu-
mælikvarða. Hin raunverulegu laun skiptust auðvitað í fleiri flokka,
því að margir ákvæðisverkamenn framleiða og vinna miklu meir
en mælikvarðinn segir fyrir um, en seinvirkir verkamenn fram-
leiða hinsvegar minna. Þegar tekið er tillit til þessa, má vel vera,
að meðallaun hálaunaflokkanna séu finnn til sex sinnum hærri en
í láglaunaflokkunum. Stakanoffar sem fara verulega fram úr fram-
leiðslumælikvarðanum bæði að magni og gæðum fá venjulega 100%
launaviðbót eða meira ofan á grunnlaun launaflokks síns; og þetta
hefur orðið til þess, að laun þeirra eru tvöfalt meiri, og í einstaka
tilfellum þrisvar til fjórum sinnum hærri en laun verkamanna í sama
launaflokki, þegar þeir eru ekki Stakanoffar. Fram að 1940 var það
algengt, að verkstjórar fengu minni laun en venjulegir faglærðir
verkamenn, þar sem Stakanoffar voru fjölmennir í vinnuflokki hans.
En frá 1. júní 1940 að telja voru laun verksljóra hækkuð, svo að
lágmarkslaun þeirra voru frá 500—550 rúblur á mánuði, en lui-
markslaunin frá 950—1100 rúblur. Upp frá því skyldu verkstjórar
fá hlutdeild í launaviðbót þegar framleiðslan í vinnudeild þeirra
fór fram úr áætlun.
Verkfræðingum og teknískum sérfræðingum eru greidd laun
samkvæmt sérstökum launareglum. Eftir að Stalín hafði haldið
Sex boðorða ræðu sína 1931 voru laun þeirra hækkuð að verulegu
leyti. Um sama leyti var þeim séð fyrir meiri þægindum varðandi
húsnæði og mataræði. Árið 1935 voru mánaðarlaun verkfræðinga
og teknískra sérfræðinga 436 rúhlur að meðaltali, í sama mund voru
meðallaun skrifstofumanna 234 rúblur, meðallaun ófaglærðra
t Lorwin og Abraham lelja að hlntfallið sé 1:3,13 í málmiðjnnni (Sja Int.
Lab. Review, jan. 1936).