Réttur


Réttur - 01.01.1944, Blaðsíða 27

Réttur - 01.01.1944, Blaðsíða 27
R É T T U R 31 Og dumpið, það hófst á ný. 10 = 0 Meðan fanginn hélt áfrain bánkaði Kassner sömu stafina: 1, 4 = s; 1, 4 = s. 2, 6. ... 1 niðamyrkri fangelsisins voru þeir báðir að stafa sama orðið, félagi, öruggir um að nú skildu þeir hvor annan, og sarnt héldu þeir báðir áfram þar til allir stafirnir voru komnir, hlustandi hvor eftir annars bánki, eins og þeir væru að hlusta eftir hjartslætti. Kassner langaði til að segja ekkert nema það sem máli skipti. lang- aði til að nota þau orð ein, sem mundu snerta dýpst manninn, sem lokaður var inni milli steinveggjanna. Fyrst af öllu, að segja honum að hann væri ekki einsamall, vernda hann frá kaðlinum, sem hann var ekki heldur að rekja, fyrst hann var að bánka. Kassner valdi orðin, taldi á fingrum sér, þelta var tungumál, sem hann þurfti enn að stafa, áðan hafði leiðsögn félaga hans hjálpað honum. En nú heyrði hann: Láttu ekki hugfallast. Vörðurinn gekk framhjá. Hinn fanginn hélt áfram, en Kassner var að byrja að, bánka orðið hver, svo það kom hvað í annað. Maður getur Hurðarskellur virtist eyða bánkinu. Kassner lagði við hlustirnar. Hann þóttist viss um að geta greint hvaðan hljóðið kæmi, og hurð- arskellurinn kom úr sömu átt og bánkið. Annaðhvort hafði vörðurinn farið inn í klefa félaga hans eða ann- an nógu nálægt til að hann hætti að bánka. En eitthvað lágt og fjar- lægt, eins og hljóð niðri í vatni, var að gerast þar inni, og kom hon- um til að hríðskjálfa í myrkrinu. Var það bánk? Nei, skellir voru það, hver eftir annan, það var ekki lengur fingur, sem bánkaði, heldur allur líkami félaga lians, sem var verið að misþyrma og skall í klefaveggina, og hljóðið titraði í skuggunum kringum Kassner, sem stóð með opinn munn, eyðilagður af vanmætti og skelfingu. Hann beið þeirra. En kannski kæmu þeir ekki. Þeir hlutu aðeins að hafa heyrt félaga
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Réttur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.