Réttur - 01.01.1944, Blaðsíða 10
14
RÉTTUR
ákvaröanir Alþingis í stjórnarskrármólinu. Sagði forsœtisráöherr-
ann, Björn Þórðarson, m. a. svo í ræðu:
„Þess má vænta, að innan skamms verði á Alþingi teknar endan-
logar ákvarðanir um stofnun lýðveldis á ísiandi, og skipun æðstu
stjórnar landsins.“ (Lýsti hann síðan viðhorfi stjórnarinnar til
málsins og sagði svo:) „Stjórnin leggur því enga áherzlu á það,
hvort sú ákvörðun verður lekin á næstu mánuðum eða í síðasta lagi
í maímánuði næsta ár. Mun núverandi ríkisstjórn því, ef til atbeina
hennar skyldi þurfa að koma, framkvæma eftir beztu getu ákvarð-
anir Alþingis um stofnun lýðveldis á Islandi, hvenær sem þær verða
teknar.“
Yfirlýsingu þessari, að stjórnin myndi hlíta forustu Alþingis,
var vel tekið af lýðveldissinnum, því ýmsir höfðu jafnvel óltazt að
ríkisstjórnin myndi gera samþykkt lýðveldisstjórnarskrár að frá-
fararatriði. Idinsvegar sætti ríkisstjórnin ásökunum frá hálfu undan-
haldsmanna.
26. nóv. kom flokksþing Alþýðuflokksins saman og tók þá ákvörð-
un í stjórnarskrármálinu að ræða yrði við konung áður en lýðveld-
isstjórnarskráin öðlaðist gildi.
29. nóv. riluðu nokkrir andstæðingar stjórnarskrárfruinvarpsins
forseta sameinaðs þings bréf þar sem þeir, jafiddiða því að lýsa sig
fylgjandi lýðveldi, kröfðust þess að þjóðaratkvæðagreiðsla yrði
ekki látin fara fram um lýðveldissljórnarskrána „fyrr en rætt hefur
verið við konung.“
30. nóv. 1943 tóku svo þingflokkarnir endanlega af skarið, gerðu
bandalag sín á milli um framkvæmd málsins og birtist frá þeim svo-
hljóðandi yfirlýsing I. desember:
,JJiiigjlokkai Framsókiiarjlolcks, Sameiniiigarflokks alþýðu —
Sósíalistajlokks og Sjáljslœðisjlokks eru sammála um, að stojna
lýðveldi á lslandi eigi síðar en 17. júní 1944 og liaja ákveðið að
bera jram á Alþingi stjórnarskrárjrumvarp milliþinganejndarinnar
í byrjun nœsta þings, enda verði Alþingi kallað saman lil reglulegs
jundar eigi síðar en 10. janúar 1944 til þess að ajgreiða málið.“
Vakti þessi yfirlýsing mikla ánægju lýðveldissinna.
10. janúar 1944 kom svo Alþingi saman og frumvarp milliþinga-