Réttur - 01.01.1944, Blaðsíða 38
42
RÉTTUR
samkomulagi þessu. Hagsmunir hins vinnandi fólks viS sjóinn og 1
sveilinni eru tengdir saman traustum böndum. Minnki tekjur laun-
þega, kemur það engu síöur niður á bóndanum, verðið á afurðum
hans lækkar, laun hans lækka. Batni hagur fólksins í bæjunum, auk-
ist atvinnan, hækki kaupið, nýtur bóndinn þess engu síður, verðið a
búsafurðum hans hækkar, kaupið sem hann fær fyrir erfiði sitt
hækkar. Rökrétt ályktun: Bændum og verkamönnum ber að bindast
traustum samtökum og vináttuböndum sín á milli til þess að vinna
að sameiginlegum hagsmunum beggja.
A-llmikilli gagnrýni sætti nefndin fyrir störf sín, enda hafði hún
skamman tíma til starfa og viðurkenndi sjálf að margt hefði þurft
meiri athugunar við. Hilt fór að vonum, að öfl þau, sem hafa pólit-
ískan hag af því að æsa til fjandskapar milli verkamanna og bænda
risu öndverð gegn samkomulaginu. Kauplækkun við sjávarsíðuna
hefur verið helzta áhugamál Framsóknarflokksins að undanförnu.
Slík kauplækkun hlyti nú að bitna á bændum, engu síður en verka-
mönnum. Afstaða Framsóknarmanna er því orðin ærið erfið fyrir
flokk, sem telur sig málsvara bændanna. Enda virðast þeir hafa grun-
samlegan áhuga fyrir ýmsu, sem orðið gæti til að spilla samkomu-
laginu. Þeir spyrntu fast gegn því, að 6-manna nefndin fengi að
halda áfram störfum til þess að endurskoða grundvöll sinn. Þeir
beita sér mjög fyrir Jiví að verð á landbúnaðarafurðum sé „fært
niður“ með greiðslum úr rikissjóði, þvert ofan í tillögur neytenda.
Mestur styr stóð þó um þá kröfu Framsóknar, sem náði samþykki
Alþingis, að greiða skyldi framleiðendum, sem landbúnað stunda,
tugi milljóna í uppbætur úr ríkissjóði, vegna útfluttra afurða, og
skyldi greiða þeim því hærri upphæðir af almannafé, sem þeir eru
auðugri, því stærra, sem bú þeirra er. Tillaga sósíalista var aftur
á móti sú, að hverjum bónda yrðu tryggðar tekjur af meðalbui
(14500 kr. á liðnu ári), en uppbætur til stærri búanna takmörkuö-
ust við afurðamagn, sem svarar lil meðalbús.
Alþýðuflokkurinn gerði harða hríð gegn samkomulagi 6-manna-
nefndarinnar. Var ekki vandséð, að hér var um „samræmdar hern-
aðaraðgerðir“ að ræða af hálfu forustumanna Alþýðuflokksins og
Framsóknar.