Réttur - 01.01.1944, Blaðsíða 45
RÉTTUR
49
er slík tillaga var borin fram af fulltrúum þriggja flokka, sem eiga
samtals 42 þingmenn.
Atvik þetta, sem sýndi greppatrýni fasisma og Finnagaldurs í
allri sinni nekt, er alvarlegt hættumerki fyrir íslenzku þjóðina. Það
er of seint að grípa um stjórnvölinn, eftir að siglt hefur verið beint
í voðann. Sjálfstæðinu fylgir mikil ábyrgð og vandasöm sigling á
sviði utanríkismála.
ENN EINN MIKILVÆGUR SIGUR DAGSBRÚNAR
í janúar sagði verkamannafélagið Dagsbrún upp samningum sín-
um við atvinnurekendur. Var uppsögnin samþykkt með þorra at-
kvæða. Helztu kröfur félagsins voru þessar: Grunnkaup í almennri
dagvinnu hækki úr kr. 2.10 í kr. 2.50 og alvinnuöryggi daglauna-
manna aukið nokkuð, með ákvæðuin um forgangsrétt þeirra verka-
manna, sem lengst hafa unnið hjá sama atvinnurekanda. Auk þess
ýmsar aðrar umbætur á sanmingnum verkamönnum í hag.
Forsaga málsins er sú, að í sumar ákvað stjórn Dagsbrúnar að
segja ekki upp samningum við atvinnurekendur, heldur leggja á-
herzlu á að dýrtíðarvísitalan yrði leiðrétt. Lofaði ríkisstjórnin, að
fenginni áskorun frá sljórnmálaflokkunum að láta endurskoða vísi-
töluna. En hún var ekki leiðrétt. Nú rökstuddi Dagsbrún kröfur
sínar meðal annars með því að vísitalan sé röng, að þegar eftir-
vinna hverfur, nægi dagvinnukaupið ekki til að framfleyta fjöl-
skyldu og að engar ráðstafanir hafi verið gerðar til þess að tryggja
stöðuga atvinnu í framtíðinni.
011 alþýða til sjávar og sveita fylgdist af miklum áhuga með bar-
áttu Dagsbrúnar. Allir launþegar vita að vígstaða þeirra í hags-
munabaráttunni fer eftir því, hversu sigursæl Dagsbrún er. Er
skennnst að minnast bi'autryðjendastarfs Dagsbrúnar 1942. Jafn-
framt er þetta beint hagsmunamál fyrir alla bændastétt landsins.
Samkvæmt samkomulagi 6-manna nefndarinnar fá bændur því betra
verð fyrir afurðir sínar, sem launatekjur verkamanna verða meiri.
Ekki horfði friðlega milli Dagsbrúnar og atvinnurekenda um
skeið. Málgögn atvinnurekenda höfðu æst sig upp í nokkuð fárán-
4