Réttur - 01.01.1944, Blaðsíða 90
94
R É T T U R
skyldi rita í ástæðurnar fyrir því, að verkamaður fór úr fyrri stöðu
sinni, en síðan skyldi hann sýna bókina verksmiðjustjórn þess fyr-
irtækis, er hann skyldi hefja vinnu hjá.1 2 1 annan stað var breytt urn
reglur alþýðulrygginganna á þá lund, að þau fríðindi, er trygg-
ingin veitti verkamönnum, voru miðuð við þann tíma, er verka-
menn höfðu unnið samfleytt hjá sama fyrirtæki.
í júnímánuði 1940, fjórum dögum eftir uppgjöf Frakka í Com-
piegne, voru gerðar ýmsar ráðstafanir, sem í rauninni samræmdu
vinnuagann hernaðarástandi. Fyrst og fremst var sjö stunda vinnu-
dagurinn afnuminn (stytzti vinnudagur í heimi — sex stunda vinnu-
dagur í erfiðri vinnu og skrifstofuvinnu) og venjulegur átta stunda
vinnudagur innleiddur í hans slað.- Ennfremur var tímalaunum,
framleiðslumælikvarða og ákvæðislaunum hagað þannig, að viku-
launin yrðu hin sömu, þrátt fyrir lengingu vinnutímans. Afleiðing-
in var því sú, að þessi eina vinnustund á degi hverjum var tillag
allra verkamanna til landvarnaráætlunar Sovétríkjanna. I stað sex
daga vikunnar var tekin upp sjö daga vika og sjöundi dagurinn
hvíldardagur. 1 greinargerð miðstjórnar verkalýðsfélaganna, þar
sem samþykkt er lenging vinnutímans, er bent á „hættuna, sem
Sovétríkjunum stafi af árás“ þar sem ástand í alþjóðamálefnum
fari síversnandi og að „nauðsyn sé á, í þágu friðarins, að auka enn
meir varnarstyrk og atvinnulegan mátt Sovétríkjanna, með því að
efla iðnaðinn, framleiða meira af málmi, eldsneyti, járnbrautar-
vögnum, verkfæravélum, bifreiðum, flugvélum, skriðdrekum, fall-
byssurn, skotfærum o. s. frv.“ Greinargerðin tekur einnig fram, að
„lílill hluti verkamanna, þrjú eða fjögur prósent, ungir verkamenn
og nýir í iðnaðinum, skeyti ekki um skyldur sínar og trufli fram-
leiðsluna með því að flökta á milli vinnustöðvanna.“3 í sambandi
1 Indus. and Lah. Information, Vol. lxix, nr. 3.
2 I þeim atvinnugreinum, þar sem áður hafði verið unnið sex stundir
var nú unnið í sjö, að undanteknum skrifstofumönnum, en vinnutími þeirra
var hækkaður úr sex stundum í átta.
3 Industría, 26. júní 1940. Fimm dögum áður hafði í forustugrein í Ind-
ustría verið hent á dæmi um fjarvist og lítinn vinnuaga. I gúmmíverksmiðj-
unni Rauði þríhyrningurinn höfðu fjarvistir níu pressumanna orsakað, að