Réttur - 01.01.1944, Blaðsíða 7
R É T T U R
11
Sendiráð Bandaríkja Norður-Ameríku
Reykjavík, 20. ág. 1942.
Herra ráðherra.
Með skírskotun til álitsgjörðar yðar, herra ráðherra, sem mér var
afhent 8. ág. 1942, leyfi ég mér, samkvæmt fyrirmælum ríkisstjórn-
ar minnar, að selja fram hér að neðan athugasemdir ríkisstjórnar
Bandaríkja Norður-Ameríku við efni álitsgjörðar yðar.
Ríkisstjórn Bandaríkjanna hefur athugað gaumgæfilega álits-
gjörðina, sem lýsir sjónarmiði íslands, að því er varðar einhliða
uppsögn í náinni framtíð á sambandslagasamningnum milli íslands
og Danmerkur og sambandi því, sem byggist á honum.
Ríkisstjórn Bandaríkjanna viðurkennir, að ógilding samningsins
og samhandsins og hinar fyrirhuguðu breytingar á grundvallarat-
riðum í stjórnarfari Islands, sé mál, sem íslenzka þjóðin ein ætti
á friðartímum að taka ákvörðun um, eftir óskum sínum og þörfum.
Ríkisstjórn Bandaríkjanna hefur ekki minnstu löngun til þess að
skerða á nokkurn hátt athafnafrelsi íslenzku þjóðarinnar í þessu
máli, en það er hinsvegar ósk Bandaríkjastjórnar, að á þessum erf-
iðu tímum sé ekkert það aðhafzt, sem kynni að hafa óheppileg áhrif
á hernaðarátök hinna sameinuðu þjóða. en undir árangri þeirra er
svo mjög komið frelsi og framtíðarvelferð, ekki einasta Bandaríkj-
anna og íslands, heldur og annarra þjóða. Það er skoðun Banda-
ríkjastjórnar, að sameiginlegir hagsmunir í góðum árangri af hern-
aðaraðgerðum hinna sameinuðu þjóða sé bezt tryggðir með því,
að óbreytt ástand (status quo) sé nú látið haldast á íslandi. Það
að viðhalda óbreyttu ástandi mundi forða því að fram kæmu ásak-
anir um að íslendingar hefðu notað sér ólán Danmerkur, sem og
koma í veg fyrir þá fölsku ásökun, að Bandaríkjastjórn hefði notað
sér hérveru Bandaríkjahers og ástandið í Danmörku til þess að
greiða fyrir sambandsslilum.
Stjórn yðar og mín stjórn vila það báðar, að Bandaríkin eru á
engan hátt riðin við hinar fyrirhuguðu aðgerðir íslendinga í sjálf-
stæðismálinu, en öxulríkin mundu telja öðrum þjóðum og stjórnum
trú um, að Bandaríkin ættu þar upptökin.
Af framansögðum ástæðum v-ill Bandaríkjastjórn endurtaka þá