Réttur


Réttur - 01.01.1944, Side 34

Réttur - 01.01.1944, Side 34
38 R É T T U R „Myndirnar segja til, býzt ég við. Og hann vissi hvað hann átti á hættu,“ hélt rostungurinn áfram. „Hvar er hann?“ Lögreglumaðurinn yppti öxlum. „Dáinn?“ „Mér kæmi á óvart ef hann væri bráðlifandi.... En eftir því að dæma, hvernig þú spyrð skil ég ekki hvernig í fjandanum þeim kom til hugar að þú værir áhrifamikill kommúnisti. Kassner var bulla en heimskur var hann ekki.“ Bíllinn fór framhjá járnbrautarstöð. Nokkrir fangar voru að vinna að vegargerð, karl og kona stóðu í faðmlögum hjá lest, sem var að leggja af stað, og flestir fanganna störðu á þau. „Hann var engin bulla.“ „Ef þú hefðir lent í því sem hann fékk, býst ég við að þú héldir samt að hann væri ágætismaður.“ Kassner starði á manninn og konuna í faðmlögum. „Efég.... já.“ Hinn lögreglumaðurinn lagði hönd á öxl Kassners: „Heyrðu, ef þig langar til að koma með okkur aftur. . . .“ En rostungurinn flýtti sér að dumpa á höfuð sér. Maðurinn hafði játað annaðhvort til þess að hætt yrði að pynda hina, hugsaði Kassner, eða af því að hann óskaði sér dauða, eða í þeirri von að hann gæti bjargað félaga, sem hann áleit meira virði en sig sjálfan, mér.... Ef maður væri brjálaður, gat hann þá verið sannfærður um að hann væri með fullu viti? Kannski hafði maður dáið í hans stað, hann vissi það, hugsaði um það og gat gert sér alveg Ijóst hvað það þýddi; og kvaldist eins og verið væri að pynda barn hans til að láta hann tala. Hann gat ekki einu sinni hrist af sér martröð fangaklefans meðan hann spurði. „Þér hafið víst ekki mynd af honum?“ Lögreglumaðurinn yppti öxlum og bandaði hendinni kæruleysis- lega. En ef þetta væri nú ekki brjálæði, heldur gildra? Ef rostungurinn hefði nú sagt þetta alll í því skyni að láta

x

Réttur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.