Réttur


Réttur - 01.01.1944, Page 57

Réttur - 01.01.1944, Page 57
R É T T U R 61 rekur. Öllu þessu fylgdi hröð fólksfjölguu og þéttbýli á víðáttulitlum svœðum. Aður en hinar stórfelldu jarðyrkjuframfarir hófust, hefði þurft alveg sérstakt ástand, til þess að liálf milljón manna gæti sam- einazt undir einni stjórn, og sennilega varð aldrei úr neinu sliku. Mesti hlómi þessa lokaskeiðs hálfsiðunar birtist oss í skáldskap Hómers, einkum llionskviðu. Margbrotin áhöld úr járni, fýsibelgir, handkvarnir, kergerðarhvel, vínbruggun og olífupressun, frekari framfarir á málmsmíðum, sem brátt urðu að listagrein, vagnar og orustukerrur, skipasmíðar úr borðum og flettum viði, ujjphaf bygg- ingalistar, múrgirtar borgir, með turnum og brjóstvirkjum, kviður Hómers og fullmótuð goðafræði — það voru aðalþættir í arfleifð þeirri, sem Grikkir fluttu með sér úr hálfsiðun, inn í siðmenningu. Og ef vér berum nú lýsingar Cæsars, og jafnvel Tacítusar, á Germön- um, sem lifðu í uj)j)hafi hálfsiðunar, saman við Grikki á dögum Hómers, þá sjáum vér hversu stórstígar framleiðsluframfarir áltu sér stað á þessu skeiði þróunarinnar. Sú mynd, sem ég hefi dregið hér upp af þróun mannkynsins í tíð villimennsku og hálfsiðunar, eftir forsögn Morgans, er að sönnu þrungin algjörum nýjungum, og það sem meira er óhrekjanlegum, af því að afköst vinnunnar eru lögð þeim til grundvallar. Þó er þessi mynd dauf og fátækleg, samanborið við þá yfirsýn, sem vér hljótum í hókarlok. Þá fyrst sjáum vér í skýru ljósi hvarfið frá hálfsiðun til siðmenningar og andstæður þróunarskeiðanna. Að lokum getum vér alhæft skiptingu Morgans þannig: Tímabil villimennsku -— þegar maðurinn lifir að mestu leyti á því, sem til fellur af borði náttúrunnar og framleiðsla hans sjálfs er einungis aukageta. Tímabil hálfsiðunar — þegar húsdýrahald, ásamt jarð- yrkju, verða algeng, og framfarir takast í framleiðslu náttúruafurða fyrir tilverknað mannsins. Siðmenning — þegar enn frekari framfar- ir urðu á framleiðslu lífsnauðsynja. Ilinn eiginlegi iðnaður hefst og listir.

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.