Réttur


Réttur - 01.01.1944, Page 77

Réttur - 01.01.1944, Page 77
R É T T U R 81 skyldi stjórna hverju fyrirtæki. Þessari meginreglu hafði að vísu verið fylgt um skeið í orði kveðnu, en í reynd hafði þessa ekki alltaf verið gætt. Við annað tækifæri sagði Stalín: „Verkamenn kvarta sí og æ yfir því, að það sé enginn húsbóndi í verksmiðjunni, ekkert skipulag. Vér getum ekki lengur þolað, að verksmiðjum vorum sé breytt úr framleiðslustöðvum í umræðufélög.“ „Stighækkandi ákvæðislaun" er mjög algengt form ákvæðis- launa; og í mörgum iðngreinum er ákvæðisverkamönnum greitt að þessum hætti.1 í slíku greiðslukerfi hækka launin hlutfallslega meir þegar farið hefur verið fram úr ákveðnum framleiðslumæli- kvarða. Við skulum taka til dæmis, að ákveðinn sé venjulegur fram- leiðslumælikvarði í ýmsum störfum (framleiðslumagnið miðað við ákveðna vinnustund): Þetta framleiðslumagn er ákvarðað á ráð- stefnu verksmiðjunefndar verkalýðsfélagsins og verksmiðjustjórn- arinnar (hin tekníska áætlun framleiðslumagnsins er gerð af sér- fræðingi í þeim efnum). Þegar hinn venjulegi framleiðslumæli- kvarði hefur verið ákveðinn er hann orðinn þungamiðja allra á- ætlana ársins eða ársfjórðungsins. 011 framleiðsla, sem verður meiri hinum ákveðna framleiðslumælikvarða, er greidd 50% hærra en grunnlaun ákvæðisvinnunnar. I sumum tilfellum er 10% fram- leiðsluaukning urnfram hið ákveðna framleiðslumagn greidd 50% hærra, 20% framleiðsluaukning tvöfalt hærra, o. s. frv. Verkamenn sem ekki ná lágmarkinu, fá greidd lágmarkslaun og ekki meira; en ef seinvirkni þeirra stafar af ástæðum, sem þeir fá ekki ráðið sjálfir við, eru þeim tryggð lágmarkslaun, sem nema tveim þriðju framleiðslumagni.2 Það er auðsætt, að tilætlunin með þessu er að örva sérstakleg^ þann framleiðsluauka, sem fer fram úr því fram- leiðslumagni, sem áður var algengt, og það því meir sem aukningin fer Iengra fram úr hinum venjulega mælikvarða. Þannig varð 1 Arið 1937 voru t. d. 75% allra verkamanna í járn- og stáliðnaði í ákvœð- isvinnu, og „meira en helmingur" þessara manna fengu stighækkandi ákvæðis- laun. (Sjá Metodíka planírovanía kornoj metallúrgíí). 2 Sjá L. Weinstein, Saraholnaja Plala (Profísdat, 1937), bls. 24, sjá einnig grein eftir þann, sem þetta ritar í Organised Labour in Four Continents, Ed. H. A. Marquand. G

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.