Réttur - 01.01.1944, Side 89
R É T T U R
93
fjársektum, fjórhagslegum fríðindum og uppeldislegum áhrifum,
sem miðuðu að því að skapa með mönnum nýja háttsemi gagnvart
vinnunni. Þetta er ekki heldur neitt undrunarefni þegar þess er gætt,
hve aðstreymið var mikið í iðnaðinn frá sveitunum, en sveitamenn
óvanir verksmiðjuvinnu eða jafnvel kvöðum horgarlífsins. Sum
hinna nýju iðjuvera (dráttarvélaverksmiðjan í Stalíngrad er dæmi
um það rétt eftir 1930) veittist mjög erfitt að koma á reglubund-
inni framleiðslu vegna þess, að þau höfðu orðið þjálfunarstöðvar
verkamanna, sem sóttu til annarra fyrirtækja jafnskjótt og þeir
höfðu lært nokkra verkhyggni. Þessi vistaskipti verkamanna voru
mest árið 1930, en fækkaði síðan, einkum eftir 1933; en enn sem
fyrr voru þau ákaflega tíð. Jafnvel 1938 má sjá miklar rökræður
í blöðuin þar sem verksmiðjustjórar, Stakanoffar og félagar verk-
smiðjunefnda koma með fjölda dæma um það, hvernig fram-
leiðslan liafi truflazt vegna sinnuleysis örfárra verkamanna og
tíðra vistaskipta. í ástæðum opinberrar tilskipunar 28. des. 1938
er vitnað í dæmi um óslundvísi, um verkamenn sem komi ekki til
vinnu nema fjóra eða fimm daga vikunnar og flakka frá einni
verksmiðju til annarrar með stuttu milibili. Tilskipun þessi benti
verksmiðjustjórum á þau fyrirmæli, að óafsakanlegar fjarvistir
væru uppsagnarsök og að hægt væri að telja mönnum það til fjar-
vista, ef þeir kæmu tuttugu mínútum of seint; það var ennfremur
svo fyrir mælt, að forstjórar, sem létu undir höfuð leggjast að
víkja mönnum frá vinnu, ef Jieir væri þrisvar fjarvislum á mánuði
án ástæðu, eða fjórum sinnum á tveim mánuðum, skyldu sjálfir
verða sóttir til sektar. Þá var og ákveðið, að í framtíðinni þyrflu
menn að hafa unnið 11 mánuði á sama stað (í stað hálfs sjötta áð-
ur) til þess að öðlast réttindi lil tveggja vikna leyfis með fullu
kaupi, Jjví að óprúttnir menn höfðu stundum brotið Jiessar reglur
með þvi að vinna hálfan sjötta mánuð sitt í hvorri verksmiðjunni
og tryggja sér Jiannig tvö leyfi á ári.1 Tvær aðrar ráðstafanir voru
gerðar á þessu sama ári og í líkum tilgangi. Samkvæmt tilskipun
20. des. 1938 voru innleiddar vinnubækur, er verksmiðjusljórnin
1 Indust. and I.ab. Information, Vol. Ixix, nr. 4, bls. 99.