Réttur - 01.01.1949, Blaðsíða 22
22
RÉTTU R
nokkur önnur, sem yfir auðvaldsheiminn hefur dunið. Maður
lítur varla svo í amerískt blað eða tímarit, sem fjallar um
fjármál og atvinnumál, að ekki séu færð rök fyrir því, að sá
skefjalausi herbúnaður sem Bandaríkin standa að víðsvegar
um heim, sé nauðsynlegur til þess að forðast kreppima. Ef
heimurinn verði friðaður og til sátta dragi með stórveldunum
þá skelli kreppan yfir með öllum sínum þunga. Eihn af hrein-
skilnustu fulltrúum Bandaríkjaauðvaldsins lýsti því yfir fyrir
skömmu, að ef um annað tveggja væri að ræða, kreppu eða
styrjöld, þá væri einsætt að velja styrjöld. Bandaríkin geta að
vísu ekki háð styrjöld eins og sakir standa vegna þess að þau
hafa hinar stríðsþreyttu þjóðir Evrópu einhuga á móti sér.
Þær munu neita að láta leiða sig til slátrunar. Eins og sakir
standa er Bandaríkjunum stríðsundirbúningurinn allt, bæði
hinn andlegi og hernaðarlegi. Öll áherzla er lögð á að kynda
undir glóðum hatursins, á framleiðslu vígvéla og morðtóla og að
koma upp herstöðvum til árása. En lokatakmark alls vígbún-
aðar er að heyja stríð.
í þjóðskipulagi Sovétríkjanna eru engar þær orsakir að
verki, sem knýja á um styrjaldarævintýri, heldur er þessu
öfugt farið. Mikill hluti Sovétríkjanna var lagður í rústir í
síðasta stríði. Frjósöm héruð voru lögð í auðn. Árangur af
erfiði og striti margra ára sem fólkið hafði lagt í alla ást
sína, allt sitt þrek og manndóm, sem var því lífið sjálft, varð
villimennskunni að bráð. Þjóðin varð að sjá á bak milljónum
sinna beztu sona. Um 17 milljónir manna létu lífið. I Sovét-
ríkjunum eru ekki margar fjölskyldur sem ekki hafa misst
einn eða fleiri ástvina sinna. Og svo halda menn að þessi þjóð
sé óðfús að stofna til nýrrar styrjaldar. Sovétríkin hafa öllu að
tapa í nýju stríði, allt að vinna í friðsamlegri þróun. Þau
þurfa ekki að óttast kreppu. Framleið'slan eykst með svo hröð-
um skrefmn að slíks eru ekki dæmi fyrr eða síðar. Hún mun
margfaldast á tiltölulega fáum árum og aukning framleiðsl-
unnar í Sovétríkjunum getur aldrei þýtt annað en aukinn styrk
og aukna velmegun.
Hugsum okkur nú að skipt væri um hlutverk. Hugsum