Réttur - 01.01.1949, Blaðsíða 31
RÉTTUH
31
stjómarflokkanna á Alþingi að haga verkum eins og hér segir:
Fyrst ætla þeir sér að samþykkja Atlanzhafsbandalagið í
sameiningu. í því máli leyfa Bandaríkin engan frest. Þeir
treysta því að hægt sé að blekkja þjóðina, smeygja hlekkjun-
um á hana andvaralausa, vegna þess hve hinn almenni sátt-
ináli er almennt orðaður. Nánari ákvæði um allar hinar marg-
i’íslegu kvaðir og skuldbindingar verða í sérsamningum þeim,
sem Bandaríkin gera við hvert einstakt ríki, en það verða bæði
opinberir samningar og leynisamningar.
Síðar hugsa þeir sér að ganga til kosninga og reyna að velta
ábyrgðinni af óstjórninni hver yfir á annan. Þeir munu ekki
Epara svardagana frekar en fyrir síðustu kosningar. Að kosn-
ingum loknum hafa þeir fengið vinnufrið í fjögur ár. Þá skríða
þeir saman aftur ef þeir fá nægilegt þingfylgi og taka til
óspilltra málanna. Þá er tími til kominn að framkvæma hina
margumtöluðu gengislækkun og gera um leið ráðstafanir — í
skjóli bandarísks hervalds — til þess að hefta starfsemi verka-
lýðssamtakanna í því skyni að koma í veg fyrir að þau geti
iétt hlut sinn. Og þá er hægt að segja Bandaríkjunum að nú
ré ekkert lengur í veginum fyrir því að þau geti hafið vígbún-
að sinn og stríðsundirbúning á landi voru, á grundvelli Atlanz-
hafssáttmáíans.
Þá samninga, sem gerðir verða að þjóðinni íorn-
spurðri, mun hún skoða sem markleysu
Þetta bragð verður þjóðin að koma í veg fyrir.
Með því að leggja fram þessa vantrauststillögu gefum við
alþingismönnum tækifæri til að marka afstöðu sína til stjóm-
arinnar skýrt og ‘bkorinort frammi fyrir þjóðinni. Það þýðir
ekki að svara því til að ekki sé mögulegt að mynda aðra stjóm.
Sósíalistaflokkurinn lýsir því yfir, að hann er reiðubúinn til að
taka þátt í stjórn með hverjum þeim þingmeirihluta, sem vill
ganga til samstarfs við hann með eftirfarandi skilyrðum:
Að Island neiti að ganga í hvers konar hemaðarbandalög,