Réttur - 01.01.1951, Page 34
34
RÉTTUR
farvegum ánna, hvar nýir skógar skuli vaxa, hvar ný vötn skuli
verða, og túrbínur snúast í nýjum orkuverum.
Eyðimerkur og steppur, ár og vötn munu lúta vilja mannsins.
Hin miklu fallvötn Dnépr, Volga og Amú-Darja munu öll þrjú
verða virkjuð samtímis og hin volduga orka þeirra knúin til
skapandi starfs fyrir land okkar.
Við erum orðnir vanir að reikna með milljónum tonna, rúm-
metra, hektara, kílóvatta. Við furðum okkur ekki lengur á háum
tölum. En við skulum nema staðar um stund og athuga merkingu
þessara tveggja stærða:
25 500 000 hektarar
4 000 000 kílóvatta
Þessar tölur tákna það landsvæði, sem verður vökvað og veitt
á vatni úr þessum þrem fljótum og samanlagt orkumagn rafmagns-
stöðvanna sem byggðar verða við fljótin og hina nýju skurði.
Tuttugu og fimm milljónir og fimm hundruð þúsund hektarar
lands er stærra en England, Skotland, Wales og Norður-írland
samanlangt. Fjórar milljónir kílóvatta jafngildir starfsorku meir
en hundrað milljóna verkamanna. Og þessi mikli vélræni starfs-
mannaher mun vinna fyrir okkur hvíldarlaust nótt og dag án
þess að þreytast.
Vatnsorkustöðvarnar við Volgu hjá Kúbíséf og Stalíngrad munu
verða hinar stærstu sinnar tegundar í heiminum. Þær munu gera
kleift að veita vatni á svæðin milli Volgu og Don, milli Volgu og
Úral og Volgu og Terek. Frá Stalíngrad og Kúbíséf munu há-
spennulínurnar greinast til Moskvu og til borga meðfram Volgu
og til samyrkjubúa héraðsins sem kennt er við svörtu moldina.
Orka frá Volgu mun verða notuð til að reka rafmagnslestir, raf-
magns kombínur og dráttarvélar og til að dæla olíu úr jörðinni.
Volga mun verða dýpkuð enn meir, skip sem sigla frá Astrakan
til Moskvu munu fara upp risavaxna skipastiga frá hverju stöðu-
vatninu til annars. Svo stórkostlegar verða uppistöðurnar við
Kúbíséf og Stalíngrad að skip sem sigla um þar í stormi munu
hreppa velting sem á opnu hafi væri.
ísbrjótar munu verða notaðir á Volgu vegna þess að á vetrum