Réttur - 01.01.1951, Side 118
118
RÉT.TUR
í sameining vorri er sigur til hálfs,
í sundrungu glötun vors réttasta máls.
Svo eggjaði Einar Benediktsson oss forðum.
En skilyrðið til þess að þjóð vor fái reist sig úr niðurlægingu
þeirri, sem verið er að koma henni í, er að henni skiljist hverjir
bera ábyrgðina á því, að svo er komið sem komið er á sjöunda
ári lýðveldisins, — hverjir það eru sem gera amerískum auðmönn-
um kleift að hertaka ísland, hverjir það eru, sem eigi aðeins vinna
að því að gera íslendinga að kúguðum þrælum, heldur og að þýjum.
III. „Og þessu ollu þeir, sem lögðu helsi
á þetta land og stálu voru frelsi“. —
„Oft hafði þjóðin alldýrt keypta von um,
að yrðu menn úr hennar beztu sonum;
þá ólum vér á snauðra fé, — svo fór,
vér fengum snotur efni í leiguþjóna.
Já, öll vor lífskjör, lítil eða stór,
þau liggja helkrept undir sömu klóna.“
Einar Ben.: Bréf í ljóðum
til Þingvallafundarins 1888.
Til þess að brjóta þjóð vora undir hið ameríska ok, þarf ekki að-
eins að spenna helgreipar atvinnu- og verzlunar-einokunar aftur
að hálsi hennar. Það þarf einnig að brjóta hana andlega á bak
aftur, — sætta hana við að líta á sjálfa sig sem réttlausa undir-
þjóð í sínu eigin landi, — fá hana til að álíta það sjálfsagt að yfir-
þjóðin brjóti á henni lög og rétt og gerða samninga og hagi sér eins
og henni þóknast, — koma henni til að trúa því að það sé henni
fyrir beztu að hinir amerísku valdhafar séu forsjón hennar í
stjórnmálum, fjármálum, sjálfstæðismálum, — telja henni trú um
að hún geti ekki staðið á eigin fótum, heldur verði að lifa af náð
yfirþjóðarinnar.
Sá maður, sem tekið hefur að sér að hafa forustuna í þessu
verki, er Bjarni Benediktsson, dóms- og utanríkismálaráðherra.
Undir valdi hans á Keflavíkurflugvellinum eru íslendingar gerðir
réttlausir, en Ameríkanar látnir með aðstoð hans brjóta lög og