Náttúrufræðingurinn - 1968, Qupperneq 15
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
123
rana er nefnist Suðurlilíðar (eða Suðurhlíðabrún) og gengur vest-
ur frá rótum Rjúpnafells nyrzt í Skaratungum. Sá rani nær langt
út með Steinsholti. Steinsholtsá kernur úr Steinsholtslóni við jökul-
sporðinn og rennur þaðan litlu norðar en vestur um nafnlausan dal
milli Steinsliolts og Suðurhlíða. Sá dalur kemur hér mjög við sögu
og verður eftirleiðis til að kornast hjá málalengingum kallaður
Steinsholtsdalur. í mynni hans, sem er þrengra en dalurinn fyrir
innan og veit norður, beygir áin í þá átt og sameinast loks Krossá á
Markarfl jótsaurum.
í stað frekari landslagslýsingar í orðum skal á það bent, að allt
sem hér var sagt og ótal margt fleira lil viðbótar um landslag í
Steinsholti og nágrenni, má lesa sér til af ágætunr landabréfum.
Þau eru Uppdráttur íslands gerður eftir landmælingum 1907 (blað
58 í mælikv. 1:50 000 og 1:100 000), kort Bandaríkjahers af íslandi
(1:50 000), og kort Ferðafélags íslands af Þórsmörk og nágrenni
(1:50 000). Síðastnefnt kort liefur það fram yfir hin, að það sýnir
jökuljaðra mjög nálægt því sem þeir liggja nú (sarnkv. flugmynd-
um Landmælinga íslands 1960), en á hinunr kortunum, sem eru
gerð eftir eldri mælingum, ná jöklarnir nrun lengra franr.
Allt l'ast berg, senr til sést í Steinslrolti og annars staðar í norður-
lrlíð Eyjafjalla, telst til móbergsmyndunar Miðsuðurlands, enda er
nróberg þar algengust bergtegund. Móbergið í Steinsholti er all-
breytilegt að gerð, misgróft og mishart. Sérstaklega lint er svart af-
brigði, senr víða hafa holazt í stórir hellar. Auk eiginlegs móbergs
eru þarna þykk lög af „ruðningsnróbergi", þ. e. sendnunr leirsteini
með basaltmolum á víð og dreif, og er það þéttara og traustara en
annað nróberg.
Frenrur lítið basaltívaf er í móberginu í Steinslrolti. Þó finnast
þar blágrýtisgangar og kubbabergskleggjar (14. nrynd), en eiginlegt
bólstraberg lief ég ekki séð jrar. Efst uppi við jökulrætur eru klapp-
ir og klettalrorgir úr grágrýti og nrunu hraun að uppruna.
Bergið í Steinsholti er víða nreð greinilegri lagskiptingu, og lrall-
ar lögunr þess yfirleitt norður, en mjög misbratt, og nrislægi er víða.
Þessi halli mun upphaflegur, en ekki til konrinn við höggun. Á því
tímabili, er eldgos voru að lrlaða þessum jarðlögum hverju ofan á
annað, hefur yfirborði landsins lrallað þarna til norðurs, eins og
því hallar enn, en nrislægið vitnar unr gröft gilja í goshléum á
myndunarskeiðinu.