Náttúrufræðingurinn - 01.06.1968, Blaðsíða 55
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN 167
Efni flestra þeirra gusthlaupa, erlendra, sem hér voru dregin
dæmi af fyrir skemmstu, er í aðeins tvenns konar ástandi: fast (grjót
og snjór) og loftkennt (andrúmsloft og gosgufur). Þó er einnig talið,
að fljótandi efni (vatn, tætt sundur í slettur og úða) sé með í sumum
gusthlaupum, það verki sem smurning, dragi úr viðnáminu við und-
irlagið, en auki kvikleika og langdrægi hlaupsins. Steinsholtshlaupið
var venju fremur fjölbreytt að efnisgerð, því að auk þess sem það
innihélt talsvert vatnsmagn, þá var hið fasta efni þess ekki aðeins
berg, heldur einnig að miklum hluta ís. Bæði vatnsúði og íshröngl
hafa verkað sem smurning í Steinsholtshlaupinu. Ef til vill var
þátttaka þessara efna skilyrði fyrir myndun gusthlaupsins frá rótum
hrunurðarinnar miklu, og hefði þá án þeirra verið um bergskriðu
eina að ræða.
Eins og fyrr var getið, hefur rúmmál hlaupfyllunnar farið ört
minnkandi á leiðinni út Steinsholtsdal. Sú rýrnun stafaði fyrst og
fremst af því, að hið samþjappaða loft rauk óðfluga upp úr henni.
Eflaust reis af þeim sökum hár mökkur upp af þessum kafla hlaups-
ins, og hefði sézt af Kambabrún í björtu veðri. En auk þess lá
hlaupinu eftir mikið af grjóti og ís í innanverðum Steinsholtsdal,
sbr. nýju hólaþyrpinguna. Að sama skapi sem loft, grjót og ís hvarf
úr hlaupfyllunni, varð hún æ vatnsbornari. Allt út í dalmynnið
hjá Réttarnefi er þó enn um gusthlaup að ræða fremur en vatns-
hlaup. Loks, þar sem hlaupið slær sér út yfir flatlendið milli Hof-
torfu og Fagraskógar, rjúka úr því síðustu leifarnar af samanþjöpp-
uðu lofti, og þar liggja einnig eftir síðustu stórbjörgin. Á leið niður
Krossá og Markarfljót er hlaupið algerlega breytt í vatnshlaup — og
veltir þó enn um sinn stórgrýti og jökum.
HEIMILDARIT - REFERENCES
Jónsson, Ólafur 1957. SkriðuCöll og snjóilóð, 1.—2. bindi. Akureyri.
Kjartansson, Guðrnundur 1951. Water Flood and Mud Flows. Vísindafélag ís-
lendinga. The Eruption o£ Hekla 1947-1948, II, 4:1-51.
Kjarlansson, Guðmundur 1967. The Steinsholt Hlaup. Jökull.
Líndal, Jakob 1936. Hvernig eru Vatnsdalshólar til orðnir? Náttúrulr. 6:65—75.
Moore, J. G. 1967. Base Surge in Recent Volcanic Eruptions. Bulletin volcono-
logique, tome XXX: 337-363. Napoli.
Pálsson, Sveinn 1945. Ferðabók. Reykjavík.
Shreve, R. L. 1966. Sherman Landslide, Alaska. Science, 154, 3757:1639-1643.
Þúrarinsson, Sigurður 1954. Þar sem háir hólar... . Náttúrufr. 24:7—15.