Náttúrufræðingurinn - 1968, Blaðsíða 21
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
129
Háltri annarri klst. eftir að sást lil hlaupsins frá Barkarstöðum,
kom frambrún þess að Markarfljótsbrú. Brúin er 238 m löng og
hvílir á 11 stöplum auk sporðstöplanna. Þegar meðalvatn er í Fljót-
inu, er hæð frá vatnsfleti upp að bitunum undir brúnni urn 2,3 m
og oftast Jágar sandeyrar upp úr vatni undir verulegurn hluta
brúarinnar, en þær hverfa í vatnavöxtum. Á býlinu Brú rétt við
eystra brúarsporðinn búa Eysteinn Einarsson vegaverkstjóri og
Jensína Björnsdóttir húsfreyja, og eru þau heimildarmenn mínir
að því sem þar gerðist í hlaupinu.
Hlaupsins varð ekki vart á Brú fyrr en það brunaði þar fram
hjá nreð miklum gný laust eftir kl. hálffjögur. Mun frambrún þess
hafa farið undir brúna mjög nálægt kl. 15,35. Dimmt var yfir og
tekið að rökkva (sólarlag skv. almanaki um kl. 15,20), svo að illt
var til athugunar á hlaupinu, sem auk þess kom með öllu fyrirvara-
laust og ógnaði bæði bænum og brúnni, fólki og fénaði. Flóðið
virtist ná hámarki mjög skönnnu (fáeinum mínútum?) eftir að
frambrún þess fór hjá. Einnig virtist það þverra snögglega. Kl. 16
virtist því lokið og Fljótið aftur komið í samt lag. Allar þessar
athuganir eru ónákvæmar, enda ekki við öðru að búast eftir ástæð-
um. En eftir því sent næst verður komizt, stóð hlaupið yfir í 15—20
mínútur. Meðan flóðið var mest náðu öldutoppar þess upp á bitana
undir brúargólfinu, þ. e. um 2,3 m yfir venjulegt vatnsborð. Tómar
tunnur, sem hlaupið tók með sér af bakkanum skannnt fyrir ofan
brúna, rákust þar upp undir og buldi í. Enginn jaki sást í hlaupinu
hjá Markarli jótsbrú, og engin jakahrönn lá eftir í farvegi þess þar
niður frá.
Markarli jótsbrú varð ekki fyrir neinum skemmdum í hlaupinu
og ekki heldur varnargarðurinn, sem liggur frá ytra brúarsporðinum
upp í Stóru-Dímon. Flóðið nam við brún þess garðs, en mun
hvergi hafa runnið yfir hann. Aftur á móti rann á kafla yfir stuttan
varnargarð upp frá eystra brúarsporði og gróf lítið eitt ofan af
honum.
Eins og fyrr segir, greindist hlaupið í tvennt undir Þórólfsfelli.
Leið syðri kvíslarinnar olan eftir Markarfljóti fram að brú er um
15 km. En leið hinnar, sem féll yfir Þórólfsfellsgarðinn, vestur undir
Háamúla og loks suður yfir aura í Markarfljót, er um 3 km lengri
og væntanlega ógreiðari, og hlýtur hlaupið að hafa verið nokkru
lengur þá leiðina. Af þeim sökum hefði þess verið að vænta, að hjá