Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1968, Page 23

Náttúrufræðingurinn - 1968, Page 23
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN 131 niðurstöðu Sigurðar á Barkarstöðum, að upptök hlaupsins voru í Steinsholtsjökli. Enn fremur var ljóst, að þau voru nokkru ofar en undan sporði hans, því að mikið umrót og jakahrannir voru á jökn 1- tungunni. En ekki var að sjá, að nokkurs staðar hefði tæmzt lón við jökuljaðar eða undir jökli né nokkur sigdæld myndazt á há- jöklinum eins og átt hefur sér stað í Kötluhlaupinu 1955 og síðar í Skaftárhlaupum (síðast í nóvember 1966). Er það skemmst frá að segja, að við áttuðum okkur ekki á, liver var oisök hlaupsins, og varð sú gáta enn forvitnilegri en áður. Að undanskilinni þessari flugferð kom enginn maður á vettvang til að skoða verksummerki við Steinsholtsjökul fyrr en sunnudaginn 22. janúar, réttri viku eftir hlaupið. En þenna dag komu þangað nokkrir hópar ferðamanna í bílum, bæði úr nærsveitum í Rangár- vallasýslu og alla leið úr Reykjavík. Fæsta þeirra kann ég að nafn- greina, en þar á meðal voru vel staðkunnugir menn, svo sem Jóhannes Kolbeinsson, á vegum Ferðafélags Islands, og Bergur Sæmundsson frá Stóru-Mörk, nú á Hvolsvelli, ennfremur Ari T. Guðmundsson menntaskólanemi í Reykjavík, sem síðar skrifaði greinargóða lýsingu á náttúruhamförunum í blað menntaskólanema (De rerum natura, apríl 1967). Þeir, sem komu að Steinsholtsjökli þenna dag, kunnu fyrstir frá að segja, að þar hafði orðið feikilegt berghrun úr Innstahaus niður á jökulinn. En flestir eða allir litu svo á, að hrunið væri afleiðing hlaupsins, en ekki orsök, og var enn allt á huldu um upptök hlaupsins. Eftir hádegi þenna sunnudag lagði ég af stað austur í Steinsholt, einn í jeppa mínum, kom um kvöldið að Stóru-Mörk og gisti hjá Árna hreppstjóra Sæmundssyni og konu hans Lilju Ólafsdóttur. Á því heimili naut ég hinnar beztu fyrirgreiðslu, bæði þá og síðar í Steinsholtsferðum mínum. í Stóru-Mörk frétti ég fyrst af ferðum þeirra, sem urðu á undan mér í Steinsholt. Árni bauðst þegar til að fylgja mér þangað daginn eftir. Mánudaginn 23. janúar héldum við inn í Steinsholt og vorum í þeirri ferð myrkranna á milli. Leiðsögn Árna reyndist mér enn nauðsynlegri en mig hafði órað fyrir. Vegna j>ess hve hann var þarna kunnugur fyrir, |>ekkti hann þegar tilsýndar, hvað var nýtt og hvað gamalt í landslaginu. En jjetta gat vafizt fyrir mér. Það liggur t. d. ekki í augum uppi h'tt kunnugum manni, að hin hrika- lega dreif af stórgrýti — steinum frá einum upp í áttatíu rúmmetra
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.