Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1968, Page 44

Náttúrufræðingurinn - 1968, Page 44
152 N ÁT T Ú R U F R Æ ÐIN GIJ R I N N Eins og vænta mátti, lágu margar af hinum brákuðu hríslum, sem þó héngu i'astar á rót sinni, teygðar í þá átt sem hlaupið æddi yfir þær. Afrifið myndaði einnig rákir með sömu stefnu. En þessu var annan veg farið um hinn smávaxnari og linari gróður, sem einnig hafði losnað um. Sina, rótatægjur og lyngdræsur lá allt teygt undan halla, þvert niður hrekkuna. Þannig hefur það bersýnilega skolazt af vatni, sem hefur alls staðar fossað ofan brekkuna, eftir að megin- hlaupið var farið hjá. Þessi verksummerki minna helzt á aðslag og útsog öldu, sem skellur skáhallt upp að sjávarströndu og brotnar. Þó hefur hér verið margfalt meiri aflsmunur aðslags og útsogs en í nokkru brimi. í suðurldíð Steinsholtsdals, þ. e. með vinstra jaðri hlaupfarsins allt út undir dalmynnið, tókst mér ekki að finna nein glögg hlaup- mörk. í fyrstu átti ég þeirra iiel/.t von í svipaðri hæð og í norður- hlíðinni, þ. e. í 30—70 m hæð yfir dalgrunninum. En að sunnan- verðu fundust engin merki eftir hlaupið — hvorki alrif á mosateyg- ingum né strandaðir jakar — hærra en um 20 m yfir jafnsléttu. Þarna hlýtur yfirborði hlaupsins að iiafa hallað um þvert frá hægri til vinstri, þ. e. frá norðri til suðurs. Orsök þessa halla gat vart verið önnur en miðflóttakraftur. Hraði hlaupsins var slíkur, að vegna tregðu hlaupmassans og sveigju hlaupfarsins til vinstri undir Rjúpnafelli skall það hærra upp að hægra bakkanum en hinum vinstra. í mynni Steinsholtsdals verður aftur þverbeygja á hlaupfarinu, að þessu sinni til hægri. Dalmynnið veit norður, að aurunum miklu á móturn Krossár og Markarfljóts, og er mun þrengra en dalurinn fyrir innan. Vestan þess er brekka upp á kamb jökulöldunnar miklu framan við Falljökul, og heitir þar Hoftorfa. En að austan er klett- óttur vesturendi Suðurlilíða, kallaður Réttarnef, og norðan tindir þeim valllendið Fagriskógur. Steinsholtsá rennur um breikkandi aura norður úr dalmynninu og skilur Hoftorfu frá Fagraskógi. Á þessari I^eygju hlaupfarsins fyrir Réttarnef koma áhrif mið- flóttakraftsins ekki síður skýrt i Ijós en á hinni efri undir Rjúpna- felli. Hægra megin, þ. e. á Réttarnefi, sjást ekki einhlít merki eftir hlaupið hærra en 15 m yfir ána og óljóst upp í 20 m í mesta lagi. En vinstra megin, í Hoftorfu, er ótvírætt afrif eltir hlaupið upp í 40 m hæð, og önnur merki þess, ölI hin sömu og fyrr var lýst inni í dalnum, eru þar einkar glögg upp í 30—35 m hæð.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.