Náttúrufræðingurinn - 1968, Side 77
NÁTTÚRUFRÆÐIN G U R I N N
185
af sæþörungum bæði til manneldis, beitar og eldiviðar, en eins megi
nota þá til vetrarfóðurs og sé sjálfsagt að hyggja að því í graslitlum
héruðum. Þá er og lýsing á algengustu þara- og þangtegundum og
greiningarlykill til að aðgreina þær eí'tir. 1907 skrifar hann fræðslu-
grein í Búnaðarritið um gróður Islands, þar sem m. a. er f jallað um
hvernig landið grói upp og einnig hvernig gróðri hafi verið eytt
liér á landi og ljrýn nauðsyn sé bráðra úrbóta. Sama ár birtir hann
einnig í Búnaðarriti grein um nauðsyn þess að korna upp grasgarði
í Reykjavík lil rannsókna og kennsln. í Skírni kom árið 1906 ritgerð
eftir Helga um Gróðrarsögu hraunanna á íslandi. Þar er mjög
skennntilega frá því sagt, hvernig hraunin gróa upp, breytast smám
saman úr grjóteyðimörk í kjarri vaxið land. í upphali þeirrar rit-
gerðar segir Helgi: „Gróður er styttra og hagfelldara í máli en
gróðrarlag eða gróðrarfar, og er það orð haft hér í sömu merkingu og
vegetatio á útlendu máli. Sú þýðing þess er og alvanaleg í mæltu
máli. Er því með öllu óþarft að skýra frekar, hvað falið er í orðinu
gróður“. Helga var það vel Ijóst af skarpleika sínurn og staðgóðri
undirstöðuþekkingu í sínu fagi, að það er grundvallarmismunur á
hugtökunum jilanta og vegetatio og þess vegna nauðsynlegt að
ákveðin orð séu notuð um hvort lyrir sig í íslenzku. Þetta virðist
þeim ekki vera Ijóst, sem á seinni árum hafa komið af stað þeim
slæma ruglingi, sem erfitt virðist vera að uppræta, að nota íslenzka
orðið gróður í báðum þessum merkingum, sitt á hvað.
Frá árinu 1907 birti Helgi annað slagið í Skýrslu Hins íslenzka
náttúrufræðifélags lréttir um nýja fundarstaði sjaldgæfra tegunda,
sem hann hafði sjállur fundið eða honum verið sendar. Aðalrann-
sóknir Helga fyrstu árin eftir heimkomuna beinast þó að sæþör-
ungagróðrinum við strendur landsins. Áður hafði hann skrifað um
rannsóknir sínar á sæþörungal lórunni, eins og getið var hér að
framan, en síðan larið aðvinna að allstóru riti um gróðurinn. Hann
hel'ur þó aklrei haft tíma til að gefa sig einvörðungu að samningu
ritsins þessi ár, því aðrar rannsóknir og ritstörf þeirra vegna, hin
•500 blaðsíðna kennslubók og þá ekki sízt kennslan eftir að heim
kom, hafa áreiðanlega tekið mikið af tíma hans. í ágúst 1910 hefur
liann þó lokið ritgerðinni, sem hann nefnir Ont Algevegetationen
ved Islands Kyster, eða um þörungagróðurinn við strendur Islands.
Ritgerðina leggur hann fram við Hafnarháskóla lil doktorsvarnar
og var hún strax tekin gild og gefin út 1. september sama ár. Síðar