Andvari - 01.08.1961, Blaðsíða 13
ANDVARI
FRÁ HAWAII
107
Mormóna-musteri. — Ljósm.: B. Th.
En þótt menn liljóti að harma örlög lrinna sólhrúnu og lífsglöðu eyja-
manna, dylst ekki, að sú blöndun þjóðflokka, sem átt hefur sér stað á Hawaii,
hefur leitt af sér sérkennilega og myndarlega þjóð. Eins og ég drap á í upphafi,
her fólkið á eyjrtnum í svip sínum einkenni margra ólíkra þjóða: Japana, Kin-
verja, Kóreumanna og hvítra manna. Eru einkenni þessara þjóða misrík í yfir-
bragði fólks og yfirleitt eru íbúar Hawaii glæsilegt fólk og vingjarnlegt.
í fyrstu settust ekki margir hvítir menn að á Hawaii.
Þegar James Cook bar þar að landi, höfðu eyjamenn vitanlega aldrei séð
hvítan mann, en þjóðtrú þeirra var sú, að guðinn Lono, sem væri Ijós á hör-
und, myndi einhvern tíma vitja eyjanna. Svo þegar James Cook bar þar að,
héldu Hawaii-búar, að þar væri hinn hvíti guð loksins kominn, og fékk hann
viðtökur í samræmi við það. Þegar Cook kom til eyjanna í annað sinn, þá tóku
eyjamenn skipsbátinn traustataki, því að þeir höfðu ekki mikla tilfinningu fyrir
eignarréttinum. Út af þessu varð misskilningur og óvinátta milli aðkomumanna
og eyjamanna, og kom til átaka. Þegar James Cook hafði skotið einn eyjaskeggja
til bana, felldu eyjamenn hann í blóðugum bardaga í flæðarmálinu. Fleiri
greinir urðu með eyjamönnum og aðkomumönnum þegar í öndverðu, en sumir
hvítu mannanna komu sér samt mjög vcl við landsmenn, svo sem George