Andvari - 01.08.1961, Blaðsíða 15
ANDVARI
FRA HAWAII
109
Frá Pali-fjöllum. — Ljósm.: B. Th.
Hawaii-dreng með sér til Ameríku. Dag nokkurn fannst hann grátandi á tröpp-
um Yale-háskóla. Og þegar hann var inntur eftir, hvað harmi hans ylli, kvaðst
liann gráta yfir fáfræði sinni. Drengnum var síðan veitt kristilegt uppeldi, en
atvik þetta ýtti undir, að trúboðar yrðu sendir til Hawaii. Pilturinn frá Hawaii
andaðist úr taugaveiki skömmu áður en leiðangur trúboðanna lagði af stað á
skipinu Thaddeus, en fjórir aðrir ungir Hawaii-menn voru á skipinu, og höfðu
þeir fengið uppfræðslu í trúboðsskóla í Connecticut. Aðalforystumenn leiðang-
ursins voru síra H. Bingham og A. Thurston, en auk þeirra voru nokkrir aðrir
sjálfboðaliðar. Þegar til eyjanna kom, voru Hawaii-mennirnir sendir á land og
komu aftur með þau gleðitíðindi, að konungur sá, sem þá var nýtekinn við
völdurn, hefði gert ýmsar mikilvægar hreytingar, þar á meðal afnumið ýmis-
konar bannhelgi, m. a. eftir kröfu mikilsráðandi kvenna á eyjunum, og þannig
greitt götu nýs átrúnaðar. 1 hinu forna samfélagi á Hawaii voru menn þjakaðir
af ótta við dulin öfl og hinir fjölmörgu guðir kröfðust margskonar fórna. Trú-
boðamir höfðu því komið á eins heppilegu augnabliki og hugsazt gat, þegar
hinn nýi konungur hafði létt af ýmsum fornum trúarvenjum og meira frjáls-
ræði ríkti en áður í þeim efnum. Konungurinn sjálfur snerist meira að segja
til kristinnar trúar, — en hann áskildi sér rétt til að lifa áfram fimm ár í synd
með hinum fjölmörgu konum sínum, áður en hann gengist undir hinar hörðu