Andvari

Árgangur

Andvari - 01.08.1961, Blaðsíða 26

Andvari - 01.08.1961, Blaðsíða 26
120 ÞÓRLEIFUR BJARNASON ANDVARI lijallanna og þeir voru mildir í gróðri og litfagrir. Hann vissi að á milli þeirra voru víða mýrasund með startjörnum. Hjallamir f>yggðu lieiðina upp. Sólskinið náði aðeins um neðstu brekkumar. Svo smádimmdi yfir þeirn og litur þeirra varð með ýmsum blæbrigðum, þar til þokan huldi allt. Vegurinn var orðinn greiðfær og bíllinn rann upp hallann með jöfnum dyn frá vél og hjólum. — Guð hvað ég er þreytt, andvarpaði hún og færðist neðar í sætinu. — Eg vildi ég gæti sofnað. Hann leit snöggt við og brosti til hennar. — Já, reyndu að sofna, góða. — Það er víst ekki hægt. Þetta er svo agalegur vegur, sagði hún. — Ekki hér, sagði liann og horfði fölur fram fyrir sig. — Hann er orð- inn góður á við það, sem hann var. Þú liefðir átt að fara hann fyrst þegar ég fór hér um. Hann þagnaði skyndilega og renndi bílnum mjúklega inn í beygju. Hann vissi að hún mundi ekki geta sofnað. Nú horfði hún aftur fram á veginn án þess að taka eftir nokkm. Og nú vildi hann tala. — Það eru falleg lithrigði í þessari heiði, sérðu mosann, þetta fagurgula skraut innan um dökkgræna grasteigana. Ekkert er fegurra en litir í víðáttu- mikilli heiði, sagði hann, án þess að hvarfla augum af veginum framundan. — Elvenær hefur þú tekið eftir þeim'? spurði hún. — Eg sé ekkert við þessa heiði. Það er oftast þoka á henni. —■ Hún er svo nálægt himninum, og þokan geymir það óþekkta. — Ætlarðu að fara að verða skáldlegur? sagði hún. — Nei, en heiðin er mikill skáldskapur. Það er fáum gefið að lesa hann. — Þykist þú geta það? — Nei, ekki nógu vel, þess vegna. Hann þagnaði, beit á jaxlinn og reri sér til í sætinu. — Hvað varstu að segja? spurði hún og var aftur orðin syfjuleg. — Heiðin er óendanleg. Hún nær fram á öræfi og út til sjávar. Hún er eins og eilífðin, hefur engan endi og ekkert upphaf. — Geturðu ekki talað um neitt annað. Blessaður farðu ekki að verða rómantískur út af einni heiði. Veiztu hvar veizlan á að vera? — Eg held á hótelinu. — Þar sem við gistum? — Ég býst við því. — Þú veizt ekki neitt, bara heldur og hýst við. Gaztu ekki fengið að vita hvernig þetta yrði áður en þú fórst?
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Andvari

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.