Andvari

Ukioqatigiit

Andvari - 01.08.1961, Qupperneq 52

Andvari - 01.08.1961, Qupperneq 52
146 SIGURJÓN BJÖRNSSON ANDVARI væri að fella alveg niður hugtakið „Ich“- hvöt og gera einungis ráð fyrir einni grundvallarhvöt: kynhvötinni. Við slíkan pan-sexualisma gat Freud alls ekki sætt sig, heldur hélt hann áfram að rannsaka. Það varð þó ekki fyrr en árið 1919, að hann eygði lausn gátunnar, og ekki fyrr en 1924, að hann taldi hana að fullu leysta. Inntak kynhvatanna hélzt óbreytt frá því sem áður var, hið hvatræna sjálf (Ich-triebe) var fellt niður. Idin svokall- aða árásar-hvöt bættist við, ásamt hinu funktionella sjálfi -(Ego), sem dró starfs- orku sína frá kynhvöt og árásarhvöt. Þessar endurbætur Freuds hafa reynzt mjög heilladrjúgar og orðið mikil lyfti- stöng fyrir frekari rannsóknir, bæði í fræðilegum og tæknilegum efnum. Með tilkomu þeirra upphófst nýtt gróskuskeið í sögu sálkönnunarinnar. Nú vildi svo til, að einmitt á þessum árum, þegar kenning Freuds var í nokkr- um vanda stödd, var Jung að verða all- órótt í félagi við Freuds-menn. Sjálfsagt hefur það orðið honum hvatning til að reyna sjálfur að kryfja hina fræðilegu gátu til mergjar. Flann valdi þann kost- inn, sem nærtækastur var, að fella niður hugtakið „Ich“-hvöt og gera ráð fyrir einni grundvallarhvöt: kynhvötinni. En þá var hann kominn í ógöngur, því að af því, sem að framan er skráð, má ætla, að Jung hafi verið síður en svo geðfellt, að verða sakaður um pan-sexualisma. Þann vanda leysti hann með því að skil- greina kynhvöt Freud-kenningarinnar á nýjan leik og Ijá henni nýtt innihald. Sú libidó, sem Jung gerði ráð fyrir, varð e. k. almenn lífsorka, eitthvað í átt við hið bergsonska „élan vital“. Sá kynferði- legi blær, sem libidó tók á sig oft og tíðum, var henni ekki eiginlegur, heldur bættist við síðar, og Jung hneigðist mjög til að líta á kynþörf mannsins sem eitt af symbólum hinnar almennu lífsorku. Þessi skoðun Jungs leiddi ennfremur af sér, að hann varð að strika yfir rann- sóknir og kenningar Freuds varðandi þróun kynlífsins í bernsku. Tæknilega hafði það í för með sér, að hin genetíska — determínska sálarlífskönnun glataði gildi sínu. Þegar svo var komið, hafði myndazt óbrúanlegt djúp milli fræði- kenningar Jungs og Freuds. Þeim var þetta báðum vel ljóst, enda leitaði hvor- ugur samstarfs við hinn eftir það. Eftir var aðeins einn samnefnari: dul- vitundin. Hún hafði löngum verið hyrn- ingarsteinn sálkönnunarinnar, og sá, sem fæstir þorðu að ráðast á, enda þótt þeir væru Freud ósammála um margt. Engu að síður lét Jung ekki staðar numið þar. Hér studdist hann einnig við ábend- ingar, sem Freud hafði gefið víða í rit- um sínum. Þannig var mál með vexti, að á fyrri hluta starfsævi sinnar var Freud talsvert veikur fyrir fýlógenetískum (phvlogene- sis = ættþróun) sjónarmiðum. A þeim árum var talsverður áhugi fyrir þeirri kenningu, sem gerði ráð fyrir, að bíóló- gísk einkenni, sem einstaklingurinn ávann sér, gætu gengið að erfðum til næstu kynslóða. Sú fræðikenning, að einka- þróun (ontogenesis) væri að miklu leyti endurtekning ættþróunar var talsvert í heiðri höfð. Freud var stundum alldjarf- ur við að heimfæra þessa kennisetningu upp á sálarlífið. Má greinilega sjá það á eftirfarandi tilvitnun: „. . . ich meine es wird bald an der Zeit sein, einen Satz, den wir Psychoanalytiker schon vor lan- gem angesprochen haben, zu erweitern, zu seinem individuellen, ontogenetisch verstandenen Inhalt die anthropologische, phylogenetisch zu fassende Erganzung hinzufúgen. Wir haben gesagt: Im Traume und in der Neurose finden wir das Kind wieder mit den Eigentúmlich- keiten seiner Denkweisen und seines
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100

x

Andvari

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.