Andvari

Årgang

Andvari - 01.10.1963, Side 29

Andvari - 01.10.1963, Side 29
ANDVARI í SMIÐJU STEINGRÍMS 147 beltin blána, það kvöldar meir og meir, hann horfir yfir vötn og þorp, fólkið gengur til hvíldar, sólin sígur, næturgalinn tekur að syngja í dimmum skógin- um og ástarstjarnan skín á himni. Samfara þessum meginmun, tímadvölinni, er önnur breyting álíka gagngerð. í fyrra ljóðinu segir skáldið þegar berum orðum í þriðju hendingu, að blámistruð skógarbeltin minni sig á ættjörðina og ver síðan því, sem eftir er sonnettunnar, til að tjá það, sem hann sér og finnur, er bann verður þessa áskynja. Steingrímur byltir þessari efnisskipun gersamlega við, þegar hann fullyrkir kvæðið. Hann cndar fyrsta erindið á spurningu; hin bláu skógarbelti minna skáldið á eitthvað, sem hann í svipinn áttar sig ekki á, hvað er: Hvað vilja þau í hug mér endurkalla? Eitthvað er að brjótast um í leyn- um hugans, hann er gripinn óróa, enda þótt þögn bvíli yfir landinu, vötnum og þorpum, fólk sé að ganga til náða og angurblíðar kvöldklukkur ómi úr fjarska, allt sé kyrrlátt og fagurt. Og nóttin legst yfir með nýjum töfrum, söng nætur- galans og stjörnuskini, en eigi að heldur finnur hann fró, — og nú fyrst veit hann orsökina: heimalandið með fjöllum og þungum fossi hafði kallað liann til sín, skógarbeltin höfðu minnt hann á ættjörðina og hugurinn er floginn heim. Hringurinn lokast. Upphaf og eridir tengjast saman. Óvíða er formgáfa Steingríms sýnilcgri en í viðskiptum hans við þetta yrkis- efni, né heldur hæfileikinn til að laða fram lýríska blæfegurð. Og leitun mun á íslenzku ljóði, sem rúmar meira af yndi og blíðu Danmerkur en þessi sonnetta. Fyrsta hendingin er sem heilt ljóð um danskt sumarkvöld, blýindin og kvöld- lygnan verða næstum því áþreifanleg við þær lagfæringar, sem skáldið gerir á hendingunni. Steingrímur Thorsteinsson hefur líklega fyrstur Islendinga ort það, sem nú er kallað íjóð í lausu máli, og er þeirra að leita í handritum hans frá árunurn 1851—60. Réttara væri þó að nefna það ljóðræna lausamál, sem hér um ræðir, ókveðin Ijóð, því skáldið hefur ýmist stuðzt eða ætlað sér að styðjast við þau í rímuðum kvæðurn. Engu að síður geta nokkur þessara ljóða eða brot úr þeim staðið sjálfstætt, þótt hafa beri í huga, að þau eru aðeins flýtisskrif og ekki fáguð síðar; stundum skýtur upp stuðlum og rími, jafnvel heilum ljóðlínum, og er þá tvennt til: að þær hafi búið mótaðar í liuga skáldsins og fallið inn í lausamálið, um leið og penninn skáraði blaðið, eða þær hafa vaxið sjálfkrafa út úr hinni óbundnu ræðu. Flest eru þessi uppköst „eintöl sálarinnar'. Sjálfur hefur Stein- grímur ekki skoðað þau öðru vísi en sem aðdraganda þeirra kvæða, er hann vann að. Með hliðsjón af því er rétt að athuga, bvernig hann notfærir sér þau. Kvæðin Nótt (frumprentað í Svövu) og Morgunn (Ný félagsrit 1861) eiga bersýnilega upptök sín í óákveðnum Ijóðum. Eitt þeirra bljóðar svo:
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124

x

Andvari

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.