Andvari

Volume

Andvari - 01.10.1963, Page 51

Andvari - 01.10.1963, Page 51
ANDVARI ÁRNI BÖÐVARSSON SKÁLD 169 Vaki þú fleygur hani Hnikars, hróður verp of prýði þjóðar, uppheims kraftar lofstír lyfti, líka grund og reim Sólunda. Til er sendibréf í ljóðum frá Árna til Jóns sýslumanns. Fyrir því er eins konar formáli, dróttkvætt erindi, sem nefnist yfirskriftin og er ávarp til sýslumanns. Upphaf: „Veleðla valds á stóli“. BréfiS sjálft er undir ferskeyttum hætti. Fyrsta erindi: Allt, hvað þenkist, yður bezt áskotnist til farsældar. Efni blaðsins so hér sezt, sem í flýti ritað var. Árni kvartar mjög um sjúkleika, segist vera „kaunum hlaSinn allur“, biSur sýslumann hjálpa sér um sængurver og hvíluvoS. Segir, aS hann hafi „löngum hverju hausti á“ gefiS sér járn og færi og einnig tóbak. Þetta ljóSabréf mun vera ort eftir 1763, ef til vill seint á ævi Árna. Jafnan var Árni BöSvarsson ölkær tal- inn, enda dregur hann ckki dul á þaS aS sér þyki gott í staupinu. í kvæSi, sem hann ncfnir Olteiti, yrkir hann um „ynd- islegt veraldarglys" þegar „vín tilbýr bug- ann“. En bæSi í því kvæSi og víSar kem- ur einnig fram veizlugleSi, sem ekki er bundin viS eina saman víndrykkju. Hann befur yndi af prúðbúnu fólki. Þá eru veizlur góSar, þegar „menn og meyjar skarta", brúSir skrýSast skarti sínu og gull skín á klæSum þeirra. Ætla mætti aS skáld, sem var í svo miklum metum sem Arni og líka hefur veriS samkvæmis- maSur, væri oft fengiS til aS flytja kvæSi í brúSkaupum og öSrum mannfögn- uSum. Þó eru aSeins til eftir hann tvö brúSkaujrskvæSi og ekki fleiri samkvæmis- kvæSi, nema ef Óltciti er upphaflega flutt í veizlu. AnnaS þessara hrúðkaupskvæSa var flutt Ólafi Gíslasyni, sem varð prestur til Saurbæjarþinga, og konu hans, Krist- ínu Jónsdóttur. Fyrirsögn: „Draumur og leiðsla Árna Böðvarssonar, sem skeði nótt- ina eftir Michaelis messu árum eftir guðs burð 1755“. Brúðkaupsdagur hjónanna var 29. september, sem er Mikaelsmessa, 1755, og er kvæðiS flutt þeim daginn eftir vígslu þeirra. Kvæði þetta er viðhafnarmikið bæði að efni og formi. ÞaS skiptist í þrjá kafla eftir efni og er hver þeirra sér um bragar- form. Fyrsti kafli er ortur undir alkunnu sálmalagi, lagboði „HjartaS, þankar, bugur, sinni“, og segir frá því að guð- inn Merkúríus hrífur skáldið með sér til uppheima á fund forlaganorna, en ágætastar þeirra eru systurnar Fortuna (Hamingja) og Felicitas (Farsæld). Þær biðja skáldiS hlýða á samtal sitt, svo að segja megi jarðarbúum frá því. Fortuna hefur máls á því að nú sé fagurt aS sjá um byggðir og hátíð mikil jarðarbúa, er Bakkus, vínguðinn sjálfur, rnæli á kerin. Felicítas spyr, hverju sæti hinn mikli mannfagnaður á jörðu niðri, hvort þar sé erfi drukkið eða tilefnið sé landsala. Fortuna svarar, að hér sé annað af að ráða. Hún kveðst hafa gefið ættgöfugum og vel lærðum manni göfuga mey. Þess vegna dansi jarðarbúar og sitji að veizlu, og meira að segja glansar uppheims ljósið landa, lifnar flest, hvað dregur anda. Annar kafli kvæðisins er þess efnis, að systurnar biðja vísdómsgyðjuna Minervu segja sér ættir hinna göfugu brúðhjóna. Flún verður við bón þeirra, lýsir ættgöfgi hjóna beggja og telur ætt brúðarinnar frá Óðni og Völsungum, en glompótt er ættartalan. Þessi kafli er undir bragar- hætti, sem á að vera fornyrðislag, og upp- haf hans er stælt eftir upphafsorðum HyndluljóSa.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.