Andvari

Árgangur

Andvari - 01.10.1963, Síða 55

Andvari - 01.10.1963, Síða 55
ANDVAM ÁKNI BÖÐVARSSON SKÁLD 173 síns getið, og í Hestum handritum cr hún án höfundarnafns. Bogi Benediktsson segir aðeins, að hún sé ort af óvildar- manni Jóns sýslumanns. I Lbs. 1045, 8vo, sem er handrit Ólafs Sivertsens, síðar prests í Flatey, skrifað á árunum 1805— 08, eru höfundar hennar taldir tveir, Þorsteinn Bárðarson í Vogatungu í Leir- ársveit og Högni hálfbróðir hans, sem var nafnfrægt skáld. Gísli Konráðsson telur Þorstein einn höfund Greifarímu. I lögna, sem var l’rægara skáld en bróðir hans, mætti vel vera eignuð hlutdeild í rímunni, þó að Þorsteinn hefði einn kveðið hana. Þeir, sem kváðu gegn Greifarímu, þykjast vel vita, hve sé höf- undur hennar og telja hana eins manns verk. Líkur mæla með því, að Þorsteinn Bárðarson hafi ort hana. Gísli Konráðs- son segir, að hann væri frændi Steinunn- ar. Ekki er frændræknin svo mikil, að reynt sé að bera af henni holdlegan breyskleika, en ekki verður hlutur Jóns sýslumanns veglegri fyrir það. Kvæði sitt gegn Greifarímu nefndi Arni Arinseld. Það er mislangt í hand- ritum, 35—40 erindi. Fyrirsögn: „Arins eldur brennandi, blossandi, blárauður und Eldhrímni Angantýs munna leiki og logi um leirskáldið Flelvítis nornanna, sem spúð hefur úr sér Ijóðmæli því, er hann kallar Rímu af greifanum Stoide". Hér skulu tekin upp nokkur erindi úr Arinseldi eftir Lbs. 1070, 8vo: 1. Arins kveikja eldinn fer undir beizku seyði, hver veit nema hann velgi þér, veslings húskinn leiði. 3. Götu breiða gengur hast gárunganna maki, þeir, sem elska lygi og last, ljóð þín vel meðtaki. 4. Allir skilja um ísa slóð, er þitt kvæði nefna, góðurn manni gjörðir hnjóð, gjarnan skal þess hefna. 8. En þó lítist auðar Bil oft á hringa lesti, haltu kjafti heilum til, hóru jagarinn vesti. 9. Nöðru hvoftur nú fær séð Níðhöggs líkur svíni, kynlegt er, þú kemur með kenningu latinæ1) 23. Kem eg þar varla orðum að anza fanti slíkum, sem þá skömm úr kjafti kvað, kauða Vítis líkum. 32. Leirskáldið, sem lét í té last um snilling mæta, þetta er, lítið þakklæte, þó má enn við bæta. 37. Þig befur sjálfur Satan hér sent með píslarfæri, skömm og lygi bófinn ber bezta snilling nærri. 38. Til þess fyndir böls við bungu, bófinn heiftar snaga, skyldu af ofraun illa tungu í Helvíti gnaga. Latneska kenningin, sem Arna þykir kynlegt, að höfundur Greifarímu kemur með, er nafnið Lapídá, sem getið er hér að framan. Þetta sýnir, að Árni hefur talið rímuna kveðna af ólærðum manni, eins og Þorsteinn Bárðarson var og einnig I lögni bróðir hans. Gísli Konráðsson segir, að Jón sýslu- maður hafi ekki beðið Árna að yrkja gegn Greifarímu, heldur hafi sýslumaður brennt öll handrit kvæðisins Arinselds, sem hann gat náð í. En Árni mun hafa fengið úr annari átt áskorun um að yrkja 1) Frb. latine.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124

x

Andvari

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.