Andvari

Årgang

Andvari - 01.10.1963, Side 81

Andvari - 01.10.1963, Side 81
ANDVARI ATIIUGANIR Á STÍL HÁVAMÁLA 199 né helgisiði (sbr. seinni hluta Hávamála- safnsins). Þeir eiginleikar, sem hljóta lof, eru varyggð, speki og hugdirfð, hófsemd og sjálfstilling. Mildir, fræknir / menn bazt lifa, / sjaldan sút ala; — glaðr ok reifr / skyli gumna hverr, / unz sinn bíðr bana. Hermennska og siglingar gegna engu hlutverki. Drjúgur hluti kvæðisins fjallar að sönnu um ferðir og gistingu, hjá framandi mönnum sem vinum: Ganga skal, / skal-a gestr vera / ey í einum stað. En það er ætíð ferðalag á fæti og yfir fjöll (erindi 3, 18), eða jafnvel þingreið (61), en aldrei sæfarir eða ferðir til framandi landa. Aldrci er heldur vikið að því hvernig menn skuli ganga fram í konungs garði. Þetta hcfði þó verið nærtækt, bæði Norðmanni og Islendingi á elleftu og jafnvel tíundu öld. Við vcrðum að leita lengra aftur til að finna líklegt umhverfi skáldsins. Ekk- ert hendir til lífs á vikingaöld né frjálsrar sýnar þess tíma. Á hinn bóginn fyrirhittum við eigi heldur í kvæðinu siðgæðishugmyndir og sterka ættartilfinningu hins forna bænda- þjóðfélags. Fátt segir af viðfangsefnum bóndans (sjá þó erindi 59: Ár skal rísa, / sá er á yrkjendur fáa, /ok ganga síns verka á vit). Það er rakinn einstaklings- hyggjumaður, sem talar, maður sem vill treysta á eigin skynsemd og mátt. Hann er gagnrýninn á aðra menn, jafnvel á vini, þótt hann ella lofi vináttuna há- stöfum. Það er sjálfstæður og sérstæður maður, sem hcfur ort fyrsta hluta Iláva- mála. Það kvnni að hafa verið maður af gerð Egils Skallagrímssonar, hefur Sig- urður Nordal eitt sinn sagt. Þetta er vafa- laust rétt. Vér sjáum móta fyrir dráttum skálds, sem um persónuleik og skapgerð hefur svipað til Egils, en hefur þó ekki lifað ókvrru lífi hans né reynt hina miklu innri baráttu hans. Hinar fáu náttúrumyndir kvæðisins benda flestar til Norcgs, cn ckki Islands: hin einmana þöll (50), úlfurinn (58), bautasteinarnir við brautina (72). Orn- inn, sem snapir og gnapir yfir hafinu (62), getur að sjálfsögðu átt heima hvort heldur í Noregi eða á Islandi. Enn er ósvarað mikilli höfuðspurningu: Eru Hávamál 1 samfellt kvæði, verk eirts skálds? Menn hefur greint á um svarið. Jón Helgason segir (1953): „Ástæða er til að spyrja, hvort þessi hluti Hávamála beri í rauninni að skoðast sem samfelld heild frá upphafi. Auðvelt er að hugsa sér, að mörg skáld hafi stundað þá íþrótt að móta lífsreynslu sína i einstakar cfnis- miklar vísur cða litla vísuflokka. Þær geta verið af ýmsum uppruna og átt ræt- ur í mismunandi umhverfi, en hefur verið safnað á einn stað“. Erik Noreen er á annarri skoðun (1926): ,,Eg hygg það mjög varasamt að líta á Hávamál sem nokkurskonar siðahoð (fyrir heiðna menn norræna) . . . Miklu fremur sýna þau okkur lífskoðun einstaks skálds og sérstæðs einstaklings“. Andreas Heusler er á sömu skoðun: ,.Hér getur ekki verið um að ræða safn alþýðlegra málshátta. Lífspekingur íhugar og kennir í eigin nafni — jafnvel þótt hann eigi rætur í fjölskrúðugri alþýðlegri geymd . . . Hef- ur kvæðið að geyma spakmælavísur, sem áður voru til? Hvað sem því líður er ljóðahátturinn afbragðsvel ortur: og mál- farið, viðhorfið og geðblærinn — það geíum vér allt eignað cinurn höfundi". Fyrrum hef ég sjálfur einkum hneigzt að sömu skoðun og Jón Helgason. En því meir sem ég hef fengizt við kvæðið og sér í lagi stíl þess, mcð samanburði við önnur hliðstæð skáldverk, því meir hef ég, óvitandi, hallazt að hinni skoð- uninni, sem þcir Heusler og Noreen halda fram. En jafnvel sá, sem hyggur kvæðið í stórum dráttum eins manns verk, verður að gcra ráð fyrir því, að
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124

x

Andvari

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.