Andvari - 01.01.1955, Blaðsíða 77
ANDVARI
Handritin frá Qumran og saga Essena
73
lífsins og háskasemdum dauðans. í þessu var áhrifamáttur þeirra
fólginn. Menn leituðu þess guðlega hjálpara, er léti sig einstakl-
inginn skipta. Hinn eini alheimsguð heim.s'pekinncir var — jafn-
vel þótt hann birtist í sólinni — fjarlægur og óraunverulegur. . . .
Milli hans og mannsins var óendanlegt djúp, og það jafnt fyrir
því, þótt gert væri ráð fyrir eðlisskyldleika Guðs og manns. . . .
Hin ýmsu lífs- og lausnargoð höfðu hinsvegar kornið hingað til
jarðar, endur fyrir löngu að sönnu, en dulmálgir helgisiðir gerðu
sögu þeirra að nálægum veruleik og töldust megnugir þess að
skapa lífstengsl milli þeirra og mannanna. Leit að lausn úr
greipum kaldra örlaga eða undan ánauð forgengileikans mótaði
trúarviöhorf ofanverðrar fornaldar og bjó í haginn fyrir kristin-
dóminn“.
Þetta er í stórum dráttum baksvið Essenahreyfingarinnar og
annarra hreyfinga meðal Gyðinga á þessum tíma, þar á meðal
frumkristninnar.
Nú skulum við líta á sögu Essena. Jósefus lýsir því, að árið
146 f. Kr. hafi veriÖ þrír flokkar meðal Gyðinga: Farísear,
Saddúkear og Essenar. Deila magnast nú milli Farísea og Saddúkea
og veltur á ýmsa vegu fyrir þeim um hylli ríkisstjórnenda
Hasmonea. Á tímum Alexöndru er svo komið, að Farísear og
Saddúkear eru báðir valdamiklir og eru Essenar þá hinir einu,
sem eru í andstöðu við valdhafana.
Eftirmaður Alexöndru, Aristobulus II, 67—63 f. Kr. hefur
ofsóknir gegn Essenum. Það er e. t. v. á dögum hans, sem hinn
mikli leiðtogi Essena er uppi. Hann nefnist Meistari Réttlætisins.
Ef til vill er hann líflátinn í þessari ofsókn. Það er ekki ósenni-
legt, að það sé nokkru seinna að byggð hefst í Qumran-klaustri.
Þar verður síðan sú saga sem nú skal sögð um helgilíf Essena.
Essenar flokkast að nokkru með þeim dulspekihreyfingum,
sem uppi voru í Hellenismanum og áður er drepið á. En aðeins
að öðrum þræði. Þeir byggja fyrst og fremst á lögmáli Gyðinga
og telja það einvörðungu leið til sáluhjálpar. Með vígslum og
hreinsunarböðum, sem að sönnu svipar til hinna hellensku trúar-