Andvari

Årgang

Andvari - 01.01.1948, Side 10

Andvari - 01.01.1948, Side 10
6 Þorkell Jóhannesson ANDVARl fjarstætt að níða landið, sem alið hefur þennan kvnstofn og fóstrað. Það er auðvelt að romsa upp langa runu af eldgos- um, hafísárum, mannfelli o. s. frv. En við skulum hafa það hugfast, að um aldaraðir megnaði allt þetta hvergi nærri að koma þjóðinni á kné. Og það voru ekki harðindin eða óbliða landsins, er léku hana harðast, heldur erlend yfirdrottnun og fjárhagsleg áþján, er henni fylgdi. Þetta er óyggjandi stað- reynd. Og það er ekki aðeins óþarft og broslegt, heldur bein- línis rangt, að mikla fyrir sér eymdarhagi forfeðranna, til þess að geta því fremur dáðst að sjálfum sér fyrir að hafa komizt þó þetta áfram. Þetta minnir á manninn, sem brotizt hafði til góðra efna úr fátækt. Hann liafði óþrotlega ánægju af því að minnast þess, að hann átti ekki skyrtu til skiptanna, þegar hann byrjaði húskapinn. Eins og slíkt kæmi málinu við. Slikir menn komast alltaf úr kútnum, hvort sem þeir byrja með talsvert, lítið eða hreint ekki neitt. Þátt þvilikra manna í smiði sinnar eigin gæfu er ekki unnt að gera stærri en hann er. En það er hægt að gera liann dálítið broslegan. Víkjum nánara að Vesturheimsferðum og orsökum til þeirra. .Tafnan er örðugt að segja, hvað telja beri fyrst og fremst til orsaka að viðskotum jafnhviklátrar skepnu og maðurinn er og sundurgerðrar i hugsun og breytni. Efalaust studdi hér margt að einu. Og úr því er straumurinn var hafinn, dró hann með sér æ fleiri. Útflutningarnir frá norðvestur Evrópu og Norðurlöndum höfðu lengi staðið, áður en íslendingar slæddust með í förina. Enginn „skurðarvetur“ eða „frostaveturinn mikli“, ekkert eldgos eða hafísar knúðu þó frændþjóðir okkar til vesturfarar. Hitt er ekkert leyndarmál, að þrálátur áróður og gagngerðar mannaveiðar voru á þessum árum reknar i ýms- um löndum Norðurálfu að undirlagi vestrænna stjórnarvalda. Fögru var heitið. Og heima fyrir var víða þröngt fyrir dyrum og frá litlu veraldargengi að hverfa. Hér á landi var þá liáð langvinn og í meira lagi tvísýn og þreytandi barátta fyrir sjálfstjórn í innanlandsinálum fyrst og fremst. Sú barátta náði hámarki um 1870, og var þá i bráð rembihnútur á riðinn með stöðulögunum 1871, er allflestir landsmanna töldu beint

x

Andvari

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.