Andvari

Årgang

Andvari - 01.01.1948, Side 62

Andvari - 01.01.1948, Side 62
58 Óttar Indriðason ANDVARI Sú fisktegund, sem mest er höfð og bezt á við í þessum tjörn- um, er aborri. Aðferðin er í höfuðatriðum þessi: Áburður, má vera livort heldur sem er tilbúinn áburður eða húsdýra- áburður, er borinn í eða dreift yfir tjörn þá, sem rækta skal. Magn áburðarins fer eftir vatnsmagni tjarnarinnar, en efna- samsetning hans eftir því, hvaða efni vantar aðallega í vatnið. Við þessar aðgerðir eykst frjómagn vatnsins mjög mikið, og í beinu áframhaldi þess og að sama skapi vex smádýralíf eða svif í vatninu. Þegar svifið hefur náð hæfilegum þroska, hefst næsta stigið, en það er, að ákveðnum fjölda ungra aborra er sleppt í tjörn- ina og sömuleiðis hæfilega miklu af ákveðnum tegundum sináfiska, sem aborrinn lifir sérstaklega á. Smáfiskar þessir lifa svo á svifinu, sem mvndazt hefur vegna áburðarins, en á smáfiskunum lifir aftur aborrinn, sem á erfiðara með að notfæra sér svifið. Að ákveðnum tíma liðnum er aftur settur áburður í tjörnina, síðan smáfiskar, þegar ætla má, að aborr- inn hafi lokið þeim, er fyrst voru settir. Þannig lieldur þessi keðjuræktun áfram. Þegar aborrinn hefur náð hæfilegri stærð, er hann allur veiddur. Síðan er hann annaðhvort settur á pönnuna eða hon- um er sleppt i stöðuvötn, til þess að hægt sé að veiða hann aftur á stöng. Aborrinn er grimin kjötæta og mun meiri heldur en silungur. Er þar að finna eina ástæðu til þess, að hann er heppilegur til þessara hluta. Önnur ástæða til þess, að silungur er ekki notaður við þessa ræktun, er sú, að til þess að skjótur og góður árangur náist af notkun áburðarins i vatninu, þarf það að vera að minnsta kosti 20° heitt. Þetta er aftúr á móti mun heitara en heppilegt er fyrir silung. í Bandaríkjunum er sil- ungur því ekki ræktaður á þennan hátt. Hrognum aborrans er ekki klakið út í fiskiræktarstöðv- um, heldur er hann látinn hrygna eðlilega. Gerir hann sér lireiður, líkt og íslenzka hornsilið. Nokkuð hefur verið gert að því í Bandaríkjunum að klekja út hrognum ýmissa sjávarfiska og með allgóðum árangri. Sum-

x

Andvari

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.