Andvari

Årgang

Andvari - 01.01.1948, Side 64

Andvari - 01.01.1948, Side 64
60 Óttar Indriðason ANDVARI 1864. Var henni valinn staður í smáþorpinu Calodonia í New York, skammt frá Rochester. Forstöðumaður þessarar klak- stöðvar og aðalhvatamaður að stofnun hennar hét Seth Green. Má hann með réttu teljast brautryðjandi fiskiræktar í Banda- ríkjunum. Klakstöðin í Calodoniu starfar enn þá með fullum afköstum. Flest hús og mannvirki, sem þar voru gerð í upp- hafi, eru enn í notkun. Seth Green hefur verið reistur ein- faldur en óbrotgjarn minnisvarði á staðnum. Viðhorf Ameríkumanna til lax- og silungsveiði er töluvert öðru vísi en almennings hér á landi. Stafar það sennilega fyrst og fremst af þvi, að veiðiréttur í ám og vötnum er þar eign hins opinbera en ekki þeirra manna, sein lönd kunna að eiga að veiðivötnunum, eins og hér er. Gildir þetta um alla veiði ferskvatnsfiska, þótt hér sé talað um lax og silung eingöngu. Þeir, sem fiskveiðar stunda í ám eða vötnum, hvort sem um er að ræða atvinnu eða skemmtun, verða að greiða ein- hverja leigu fyrir. Sé t. d. um stangarveiði að ræða, kaupir veiðimaðurinn leyfisbréf, sem heimilar honum að stunda þessa veiði um tiltekinn tíma á ákveðnu svæði. Yfirleitt er verð þess- ara leyfa sanngjarnt. Tekið er tillit til veiðitækja þeirra, sem nota skal, og ástæðunnar til veiðinnar. Þá er víðast hvar gerð- ur greinarmunur á því, hvort um er að ræða heimamenn eða aðkomumenn, þannig að aðlcomumaður borgar meira fyrir sams konar leyfi. Þótt gjaldið fyrir veiðileyfin sé sanngjarnt, þá er það mikið fé, sem saman kemur fyrir þau. Þessu fé er síðan varið til fiskiræktar, aðallega af hinum einstöku ríkj- um. Notar hvert ríki um sig það fé, sem þar kemur inn, til íiskiræktarstarfsemi innan sinna endimarka. Mörg ríki leggja mikla áherzlu á að hafa stangarveiði sem bezta í ám sínum og vötnum, því að góð veiði dregur ferðamenn að meira en flest annað, sem þau kunna að hafa upp á að bjóða. T. d. hefur það oft verið sagt um Maine, sem er nyrzta og austasta ríki Bandaríkjanna, að íbúar þess lifðu aðallega á sumargest- um. Þótt þetta sé e. t. v. nokkuð orðum aukið, er hitt víst, að óhemju fjöldi manna kemur þangað norður á sumrin frá stórborgum og úr þéttbýli austurstrandarinnar. Mikinn þátt

x

Andvari

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.