Andvari

Volume

Andvari - 01.01.1948, Page 83

Andvari - 01.01.1948, Page 83
ANDVABI Um Bjarna Thorarenscn 79 nema einn hinna mörgu miðlungsskálda, mundi nútímamönn- um þvkja það nýstárlegt, að hann skyldi láta sér orðstír sinn í léttu rúmi ligg'ja. En þar skjátlast nútímamönnum, þvi að það gerir einmitt þetta kæruleysi skiljanlegt, að hann var sannarlegt skáld. Þegar andríki skálds bregður ekki aðeins fyrir í einstaka leiftrum, sem rjúfa þess andlegu hversdags- flatneskju, þegar andríkið er þvert á móti eins og blossandi hál, sem læsir sig um alla verund þess, þegar skáldeðli þess er svo víðfeðma og samstætt, að guðdómurinn opinlierast því ekki einungis allra snöggvast og að óvörum stöku sinnum, heldur er því stöðugt fylgispakur eins og skugginn, ])á gefst því aldrei tími til að verða forviða á sjálfum sér eða fá svo ljósan skilning á sér sem títl er um þá hagyrðinga, er þann bjarma leggur af, sein, þegar öllu er á botninn hvolft, er sama eðlis sem birtan frá krystallsmvndunum klakans: endurskin aðfengins ljóss. Skáldsnillingnum má aftur á móti líkja við mann, sem heldur á ljósi i inyrkri: hann lýsir öðrum, en fætur hans sjálfs eru i dimmunni. Aðrir geta séð, hvað í honum býr, en hann fer allra sinna ferða með snilld og öryggi svefngöngu- inanns, þótt ekki viti hann hætis hót til sjálfs sin. Bjarni Thorarensen fæddist á stórbýlinu Hlíðarenda. Þeim hæ eru sögulegar og skáldlegar minningar tengdar. Þar átti Gunnar heima, hetjan, sem kunn er af frásögn Njálu. Hinum upphaflega yndisþokka Fljótshlíðar, sveitarinnar, sem Hlíðar- endi er í, hefur nágranna hennar, Heklu, ekki tekizt að eyða til fulls, en hrörnun sú, er þar blasir við, hlýtur þó að vekja hverjum þeim angurværð, sem verður hugsað til þess tima, er hennar blómlega fegurð, hennar „bleiku akrar og slegnu tún“ hrifu hug Gunnars svo mjög, að hann „vildi heldur biða hel“ en skilja við hana. lijarni Thorarensen lýsir henni á þessa leið í einu kvæða sinna: Nú er flag Fljótshlíð orðin, íturvæn er áður þótti, i fjallaaur fætur hyljast, á grænuin fyrr sem grundum stóðu. 6

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.