Andvari - 01.01.1928, Blaðsíða 27
Andvari
Jón Magnússon
25
ur Jónsson frá Gautlöndum með Jóni Magnússyni sem
forsætisráðherra. I því sambandi farast j>Tímanum« (28.
febr.) svo orð um forsætisráðherravalið:
»Þegar á þing kom, urðu það tillögur
Ummæli^ me|rj þingmannai ag fela Jóni Magn-
„Tímans . ^SSynj ag mynda hina nýju stjórn. Þótt
haupmannablöðunum reykvísku tækist að fella hann frá
kosningu, nýtur hann mikils trausts út um land, vegna
undangenginna ára. Það var og heppilegt fordæmi, að
fara út fyrir þingið um ráðherraval. Voru það einkum
Heimastjórnar- og Framsóknarflokkarnir, sem að því
vali stóðu«.
Svo sem öllum er kunnugt, var »Tíminn« ekki í
flokki með Jóni Magnússyni, og ummælin eru sönnun
þess, hve föstum fótum J. M. stóð í þinginu eftir þá
þjónustu, sem hann hafði veitt landinu fram að
þessum tíma.
Þessi stjórn sat að völdum fram á þing
J. M. lætur 1922. Þá fékk hún áskorun frá Fram-
a stjorn. sóknarflokknum um að segja af sér, án
þess að nokkur vantraustsyfirlýsing kæmi fram í þing-
inu. Jón Magnússon krafðist þá þess, að meira en
helmingur þings lýsti yfir þeim vilja. Þeir urðu 22, sem
óskuðu stjórnarskifta. Þar mun hafa ráðið mestu ágrein-
ingur um landsverzlunina. Jón Magnússon vildi leggja
hana niður sem fyrst eftir ófriðinn. En þeir menn voru
til á þingi, sem voru honum alls ekki fráhverfir, en
vildu ekki fylgja honum að málum í því efni. Samt varð
munurinn ekki meiri en þetta.
Á þessu þingi (1922) varð sú breyting á
Áfengis- áfengislöggjöfinni hér á landi, sem óhjá-
kvæmileg reyndist vegna samninganna við
Spánverja. Eg las í útlendu blaði um þær mundir, að