Andvari - 01.01.1928, Side 59
Andvari
Flugferðir
57
vélum. I sömu átt fer það, að nú er tæpast gerð verzl-
unarflugvél, sem ekki hefir meira en eina bifvél, heldur
hafa þær flestar tvær og sumar þrjár, svo að fluginu
er hægt að halda áfram, þótt ein vélin bili. Eins miðar
allt að því að gera farm- og fólksflutningatækin stærri
og burðarmagnsmeiri. Til þess að sýna, hve langt menn
eru komnir í þessu efni, skal þess getið, að ein flugvél
félagsins »Deutsche Luft-Hansa«, valin af handahófi,
en meðal þeirra stærri þó, vegur tóm 3700 kg.; hún
hefir þrjár bifvélar; tveir menn stjórna henni, og hún
ber 2300 kg., auk 9 farþega. Þó að ekki sé litið til
flýtis flugtækja, sem þó er þeirra mesti kostur, þá eru
kjör flugfarþega, samanborin við kjör farþega á öðrum
farartækjum, ekki slæm. Að vísu er dýrt að fljúga, enn
sem komið er, en þó ekki dýrara en að ferðast á 1. far-
rými í járnbrautarlest. Þannig kostar það á 1. farrými í
lest frá Berlín til Lundúna 165.60 mörk, en í loptinu
kostar ferðin 160 mörk að sumarlagi, en 135 mörk
að vetrarlagi.
Til þess að sjá kjör flugfarþega, skulum við hugsa
okkur mann, sem ætlar að fljúga frá Berlín tfl Lundúna.
Hann kaupir sér farmiða á einhverri ferðamannaskrif-
stofu. Á tilsettum tíma er hann sóktur í bifreið og hon-
um ekið út á flugvöllinn endurgjaldslaust. Þar verður
hann að sýna vegabréf og farseðil; enn fremur er hann
veginn með farangri sínum, því að flugvélin má ekki
flytja nema vissan þunga. Sjálfur má hann flytja með
sér allt að 15 kg. endurgjaldslaust; fyrir það, sem þar
er fram yfir, verður hann að greiða víst á hvert kg.
Honum er svo fylgt til þess sætis, sem honum ber, en
það er bakhár og fóðraður hægindastóll. í sumum flug-
vélum eru þessir stólar svo útbúnir, að það má breyta
þeim í legubekki. Maðurinn á svo að sitja í þessu sæti