Menntamál - 01.12.1949, Page 13

Menntamál - 01.12.1949, Page 13
MENNTAMÁL 135 af hans beinum í andlegum skilningi og þó einkum blóð af hans blóði. Þeir, sem þekktu Sigurð og þótti vænt um hann, þykir einnig vænt um þennan stíl. Ef til vill nýtur hann sín hvergi betur en í mannaminnunum. Þar kemur að minnsta kosti sums staðar betur fram fjör hans í hugsun og léttleiki í framsetningu, sem hann var ríkulega gædd- ur og naut sín með ágætum í orðræðum hans. Fáir menn, hygg ég, að hafi vandað jafnt ritverk sín og Sigurður. Hann var alltaf að breyta þeim og bæta þau jafnt í próförk sem handriti og varð aldrei laus við þau, fyrr en prentvélin sleit hann frá þeim. Hann vitnaði líka oft í þessi viturlegu orð, sem rituð eru í formála fyrir málfræði- ritgerð í Snorra-Eddu: „Leiti eftir sem vandlegast þeir, sem nú vilja fara að nýjum háttum skáldskapar, hversu fegurst er talað, en eigi hversu skjótt er ort, því að að því verður spurt, hver kvað, þá er frá líður, en eigi, hversu lengi var að verið.“ Störf Sigurðar Guðmundssonar voru mikil og þjóðinni farsælleg, en eigi verður svo innt frá vei’kum hans, að þar verði konu hans, frú Halldóru Ólafsdóttur, ekki einnig getið. Þrek hennar og þróttur efldi hann og styrkti í lífs- baráttu, sem mæddi oft hart á honum og gekk honum nærri. Honum var þörf jafnvel fremur flestum mönnum aðhlynn- ingar og örvunar, og þetta veitti hún honum af örlæti hjarta síns. Hafa þau hjón hlotið að eiga við naum kjör að búa. íslenzkir kennarar hafa aldrei haft af ofrausn að segja um launakjör, ef þeir hafa fórnað embættisskyldun- um öllum kröftum. Sigurður tók aldrei að sér aukastörf, hann vann skólanum heill og óskiptur. Bar það dugnaði, manndómi og hagsýni frú Halldóru órækt vitni, að hún skyldi geta haldið heimilið af sílkum myndarbrag og rausn, sem landskunn er, við jafnlítil efni. Samt átti hún krafta aflögu til að sinna verkefnum, sem lágu utan vébanda heimilisins. Sú mikla rækt, sem hún lagði við skólagarð- inn, sýndi ljóslega þörf hennar og þrá til að fegra og prýða

x

Menntamál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.