Menntamál - 01.12.1949, Síða 29

Menntamál - 01.12.1949, Síða 29
menntamál 151 kenndir. Þá eru börn, sem þjást af sálrænu misræmi (psykopati), sem dregur úr námsgetu, þó að margir þætt- ir greindarinnar séu góðir og traustir. Loks verður að nefna þau börn, sem búa við svo óhollar heimilsástæður, að þær raska eðlilegu innra samræmi og há námi barnsms. Langflestum þessara barna má hjálpa að verulegu leyti, ef réttum aðferðum er beitt. Sé þeim aftur á móti ekki sinnt sérstaklega, magnast ágalli þeirra í einhverri mynd og þroskinn verður þá minni en efni stóðu til. Þá verða börnin sjálfum sér ónóg, en um leið veik fyrir freisting- um, viðnámslaus gagnvart fordæmi misjafnra félaga. 1 óleyfilegum verknaði finna þau eins konar huggun og bót fyrir þann vansa að standa jafnöldrum sínum að baki í skólanum. Rangt og ófullnægjandi uppeldi afbrigðilegra barna er því ein af uppsprettum hinna tíðu afbrota barna og unglinga. Á uppeldismálaþinginu í sumar og á 8. landsþingi Kven- félaga sambands íslands, sem haldið var um líkt leyti, komu fram raddir um stofnun félagsskapar, sem ynni að hinum margvíslegu viðfangsefnum í uppeldi afbrigðilegra barna. Nú hefur fyrsta deild þessa félags verið stofnuð: Rumaverndarfélag Reykjavíkur. Sú er von okkar, sem að stofnun þessa félags stöndum, að hliðstæð félög verði stofnuð sem víðast á landinu, en síðan gangi þau öll í samband og starfi sameiginlega að lausn þessa mikla vandamáls. í lögum félagsins segir svo: 2. gr. — Markmið félagsins er: a. að vinna að almennri barnavernd, b. að vinna að verndun og uppeldi vanheilla og annarra afbrigðilegra barna, c. að hjálpa börnum og unglingum, sem framið hafa lög- brot, eða eru á annan hátt á glapstigum. 3. gr. — Markmiði sínu hyggst félagið að ná: a. með fræðslustarfsemi í ræðu og riti,

x

Menntamál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.