Menntamál - 01.12.1949, Page 34
156
MENNTAMÁL
HELGI TRYGGVASON kennari:
Frá þingum
alþjóSasambands kennara.
Þegar leitað var fyrir
nokkrum árum þátttöku í
stofnun alþjóðasambands
fyrir kennara, sem hafa
skyldi vítt starfssvið og
vinna í þágu sem allra
flestra þjóða, voru íslend-
ingar einnig kvaddir til.
Urðu þeir við áskorun-
inni, og var Steingrímur
Arason kennari, þá stadd-
ur vestan hafs, kjörinn af
íslenzku stjórninni til þess
að mæta fyrir íslands
hönd. Tók hann virkan
þátt í tveimur undirbún-
ingsþingum, sem haldin
voru þar vestra. Um þau
o. fl. hefur hann skrifað
merkilega bók, Landnám í nýjum heimi. Síðan mætti hann
einnig sem fulltrúi á fyrsta reglulega fulltrúaþinginu, sem
háð var í Glasgow sumarið 1947.
Kennarasamtök þessi hlutu nafnið World Organization
of the Teaching Profession, skammstafað WOTP. Þegar
samband þetta komst á stofn, höfðu samtök Sameinuðu
þjóðanna þegar verið mynduð. UNESCO (United Nations?