Menntamál - 01.12.1949, Page 44

Menntamál - 01.12.1949, Page 44
166 MENNTAMÁL „reyndist sannara, sem höggormurinn segir, að maðurinn muni vissulega ekki deyja.“ Yfirleitt veit hann það um frásögur ritningarinnar, að í „ljósi kristilegrar trúar og vísindalegrar þekkingar eru þær næsta barnslegar“ (bls. 22). Um Jesús segir í nefndri bók: „I biblíunni er hvergi sagt, að sonurinn sé jafn föð- urnum“(bls. 23), og „friðþægingarlærdómurinn á rót sína í heiðinglegum og gyðinglegum fórnarhugmyndum, sem Jesús og spámennirnir börðust á móti“ (bls. 68). Það er auðskilið, að þegar búið er að fara þannig með Biblíuna og lútherska kenningu, er aðeins örstutt skref eftir til þess að nema burt þann mun, sem er á kristindómi og öðrum trú- arbrögðum og að blanda svo öllu saman eftir eigin geð- þótta. I bókinni Kver og kirkja eru mörg greinileg dæmi þessa, þó ég láti nægja að nefna eitt þeirra. Um Múhameð segir þar: „Það er hörmulegt að vita, að einn hinna mestu spá- manna Guðs skuli enn vera í íslenzkum barnalærdómi nefndur falsspámaður. Boðskapur hans hefur verið ljós á vegum fimmta hluta mannkyns í yfir tólf hundruð ár. Milljónir Múhameðstrúarmanna eru Guðs börn eins og vér“ (bls. 37). Ég vil að endingu tilfæra nokkur orð úr kaflanum um vakningar, en höfundur fagnar því mjög, að þær skuli ekki hafa náð til íslands. Hann segir: „Yfir ís- lenzku trúarlífi og guðrækni guðspjallanna hvílir hin ró- lega tign heilbrigðrar skynsemi, óspilltra tilfinninga og réttlátrar breytni“ (bls. 96). Sjáið þið til! Það er vanda- laust að komast af án þess Krists, sem Biblían boðar, fyrir þann, sem getur gengið fram fyrir Guð í þessum skraut- klæðum: heilbrigð skynsemi, óspilltar tilfinningar og rétt- lát breytni. Heilbrigðir þurfa ekki læknis við. Einhver kann nú að segja, að það sé ekki rétt að taka svona gamla bók að vitni í þesssu máli, og skal ég viðurkenna, að það er nokkuð til í því.

x

Menntamál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.